Fimmtíu og fimm mál voru bókuð hjá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan fimm í morgun til fimm síðdegis í dag. Ekkert þeirra sem lögregla hafði afskipti af á tímabilinu var í fangageymslu þegar tilkynningin var send út.
Alvarlegasta umferðaratvikið varð í Hafnarfirði þegar bifreið var ekið á mann á rafhlaupahjóli. Maðurinn var fluttur á slysadeild en ekki lágu fyrir upplýsingar um hversu alvarleg meiðsl hans voru.
Í Kópavogi var ökumaður stöðvaður vegna gruns um að aka gegn gjaldi án tilskilinna réttinda. Bifreiðin reyndist jafnframt ótryggð.
Veðrið setti einnig mark sitt á daginn. Lögreglu bárust nokkrar tilkynningar um foktjón og önnur óveðurstengd mál í miðborg Reykjavíkur og nágrenni. Þá var tilkynnt um þakplötur sem voru byrjaðar að fjúka í Grafarvogi, Mosfellsbæ og Árbæ.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir