Tómas Hrafn Sveinsson lögmaður hefur verið metinn hæfastur umsækjenda um tvö laus embætti héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur. Þóra Hallgrímsdóttir lögmaður var metin næsthæfust.
Tómas Hrafn er gjarnan kallaður Talninga-Tómas vegna starfa sinna í yfirkjörstjórn Reykjavíkur. Hann hefur jafnframt reynslu af dómarastörfum, en hann gegnir starfi varadómara við Endurupptökudóm.
Samkvæmt tilkynningu á vef Stjórnarráðsins auglýsti dómsmálaráðuneytið embættin tvö laus til umsóknar 4. september 2026. Um er að ræða annars vegar skipun í embætti héraðsdómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur og hins vegar setningu í embætti við sama dómstól til 31. ágúst 2028.
Dómnefnd um hæfni umsækjenda hefur skilað umsögn sinni til ráðherra. Þar kemur fram að Tómas Hrafn sé hæfastur umsækjenda en Þóra Hallgrímsdóttir komi næst honum að hæfni.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir