Æxli hættu að stækka hjá 90 prósentum sjúklinga í rannsókn á nýju lyfi og hjá um átta prósentum hurfu þau alveg af myndgreiningum. Sérfræðingar tala um mestu framfarir í meðferð briskrabbameins í áratugi, en vara jafnframt við því að lyfið sé ekki lækning.
Nýtt lyf í töfluformi hefur vakið miklar vonir meðal krabbameinslækna eftir að niðurstöður rannsóknar sýndu að það gæti haft veruleg áhrif á framgang briskrabbameins, eins banvænasta krabbameins sem fólk getur greinst með.
Lyfið nefnist daraxonrasib og var rannsakað hjá 61 einstaklingi með langt gengið briskrabbamein sem hafði dreift sér til annarra líffæra. Niðurstöðurnar sýndu að æxli hættu að stækka hjá 90 prósentum þátttakenda. Hjá rúmlega 60 prósentum minnkuðu æxlin eða hurfu og hjá um átta prósentum sáust engin merki um æxli á tölvusneiðmyndum.
Ári eftir að meðferð hófst voru 76,6 prósent þátttakenda enn á lífi. Til samanburðar lifa að jafnaði um 40 til 45 prósent sjúklinga sem fá eingöngu hefðbundna krabbameinslyfjameðferð í eitt ár.
Rannsóknin stóð að meðaltali yfir í 18 mánuði. Hjá sumum sjúklinganna hafði krabbameinið ekki tekið sig upp aftur á þeim tíma. Frekari rannsóknir þurfa þó að leiða í ljós hversu lengi lyfið getur haldið sjúkdómnum í skefjum og hvort það geti leitt til langvarandi sjúkdómshlés.
„Það sem næst kemst lækningu“
Dr. Wungki Park, krabbameinslæknir við Memorial Sloan Kettering Cancer Center í New York, kynnti niðurstöðurnar á alþjóðlegri ráðstefnu um krabbameinsrannsóknir í Barcelona. Hann sagði að þetta væri „það sem næst kemst lækningu“ og bætti við að hann hefði aldrei áður séð jafn mörg æxli hverfa hjá sjúklingum þar sem krabbameinið hefði þegar dreift sér.
Hann sagði að niðurstöðurnar bentu ekki aðeins til þess að fleiri sjúklingar svöruðu meðferðinni, heldur einnig að svörunin væri meiri og sjúkdómurinn héldist lengur í skefjum. Það gæti á endanum skilað sér í lengri lífslíkum.
Banvænt krabbamein
Briskrabbamein er eitt erfiðasta krabbameinið í meðferð og greinist oft ekki fyrr en sjúkdómurinn er langt genginn. Um helmingur þeirra sem greinast deyr innan þriggja mánaða og aðeins um þrjú prósent þeirra sem hafa fengið meinið í önnur líffæri lifa í fimm ár.
Daraxonrasib virkar með því að hamla ákveðnum stökkbreyttum próteinum sem stuðla að vexti krabbameinsæxla. Slíkar stökkbreytingar eru algengar í briskrabbameini og vísindamenn telja að lyfið gæti einnig haft möguleika í meðferð annarra krabbameina.
Michelle Mitchell, framkvæmdastjóri bresku krabbameinsrannsóknastofnunarinnar Cancer Research UK, sagði niðurstöðurnar marka mikilvægt framfaraskref fyrir fólk með briskrabbamein.
Hún lagði þó áherslu á að frekari rannsóknir væru nauðsynlegar áður en hægt yrði að meta hvort lyfið hentaði til almennrar notkunar. Þrátt fyrir jákvæðar niðurstöður væru lífshorfur fólks með briskrabbamein enn mjög slæmar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir