Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Fólk

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Pólland rannsakar óþekktan hlut sem féll úr lofti

„Engin ógn stafar nú af lofti. Við­bragðs­að­ilar eru á vett­vangi.“

Eldur á vettvangi
Eldur á vett­vangi Pólsk yfir­völd rann­saka hlut sem féll á akur­lendi í Biłgoraj-hér­aði og kvikn­aði í. Mynd: X.com

Pólsk yfir­völd rann­saka til­kynn­ingar um að óþekktur hlutur hafi hrapað aðeins 45 kíló­metra frá landa­mærum Úkraínu.

Aðgerða­stjórn pólska hers­ins (DORSZ) greindi frá því klukkan 7:07 í morgun að grunur léki á að „óþekktir hlutir hefðu brotið gegn pól­skri loft­helgi“. Þetta gerð­ist á sama tíma og Rússar gerðu umfangs­mikla árás á Úkraínu.

Leitar- og björg­un­ar­sveit var send til Biłgoraj-hér­aðs í suð­aust­ur­hluta Póllands í kjöl­far til­kynn­inga um að hlutur kynni að hafa fallið nærri þorp­inu Chmielek.

„Þjón­ustu­að­ilar fengu til­kynn­ingar frá íbúum og var því sendur hópur á vett­vang til að tryggja svæðið og finna stað­inn þar sem hlut­ur­inn kann að hafa fallið, hafi það á annað borð gerst,“ sagði Jacek Goryszewski, tals­maður aðgerða­stjórn­ar­innar, í sam­tali við TVN24.

Goryszewski sagði rat­sjár­kerfi hafa gefið vís­bend­ingar um að atvik gæti hafa átt sér stað eftir klukkan 6:30. Yfirvöld ynnu nú að því að sann­reyna upp­tök­urnar.

„Það er vissu­lega mögu­legt að brotið hafi verið gegn loft­helgi okkar. Við erum að rann­saka málið,“ sagði hann.

Tals­maður DORSZ sagði síðar við pólska rík­is­frétta­stof­una PAP að hlut­ur­inn sem féll til jarðar gæti verið Ch-101 stýriflaug eða þotuknúið drónafar.

Donald Tusk, for­sæt­is­ráð­herra Póllands, skrif­aði á sam­fé­lags­mið­il­inn X:

„Ég hef fengið upp­lýs­ingar frá [Władysław Kosiniak-Kamysz, varn­ar­mála­ráð­herra] og [Marcin Kierwiński, inn­an­rík­is­ráð­herra] um örygg­is­á­standið í Biłgoraj-hér­aði í kjöl­far brots á pól­skri loft­helgi.

Engin ógn stafar nú af lofti. Við­bragðs­að­ilar eru á vett­vangi.“

Rannsókn stendur yfir

Dariusz Działo hjá almanna­varna­mið­stöð Lublin-hér­aðs sagði að hlutur hefði fallið á akur­lendi í Lipowiec, í sveit­ar­fé­lag­inu Księżpol í Biłgoraj-hér­aði, og kviknað hefði í honum.

Ekki væri enn ljóst hvort um eld­flaug eða dróna væri að ræða. Erfitt væri að kom­ast að vett­vangi þar sem hlut­ur­inn log­aði enn. Svæðið hefði verið girt af og slökkvi­lið væri þar að störfum.

Działo sagði enga hættu steðja að nær­liggj­andi bæjum eða skógum.

Hann greindi einnig frá óstað­festum til­kynn­ingum um að hlutir kynnu að hafa fallið á fleiri stöðum og að leit stæði yfir.

Sak­sókn­ara­emb­ættið í Lublin-hér­aði stað­festi að rann­sókn væri hafin á mögu­legu broti gegn pól­skri loft­helgi. „Nákvæmur fjöldi hlut­anna og eðli þeirra er enn til rann­sóknar,“ sagði emb­ættið.

„Við munum veita frek­ari upp­lýs­ingar þegar frum­at­hugun og grein­ingu er lokið,“ bætti það við.

Hernaðaraðgerðum og viðvörunum lokið

Goryszewski sagði pólskar her­þotur og flug­vélar banda­manna hafa verið á lofti alla nótt­ina til að fylgj­ast með ástand­inu og vera reiðu­búnar til við­bragða.

Flug­um­ferð var stöðvuð á Rzeszów-flug­velli vegna hern­að­ar­flugs.

Dariusz Klimczak, inn­við­a­ráð­herra Póllands, greindi jafn­framt frá því á sam­fé­lags­miðlum að flug­turn­inn á Rzeszów-flug­velli hefði í fyrsta sinn verið rýmdur. Níu manns hefðu verið fluttir í neyð­ar­skýli.

Almanna­varna­mið­stöð stjórn­valda gaf einnig út við­vörun snemma um morg­un­inn til íbúa í 20 hér­uðum í Lublin- og Podkarpackie-hér­uðum.

Við­vör­unin var aft­ur­kölluð skömmu eftir klukkan 7:30 og hern­að­ar­flug­vélar hafa síðan lokið aðgerðum sínum í pól­skri loft­helgi.

Yfirvöld hvöttu íbúa til að fylgja fyr­ir­mælum við­bragðs­að­ila og lögðu áherslu á að fólk skyldi ekki nálg­ast svæðið þar sem hlut­ur­inn kann að hafa fallið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið í vikunni

Heimur

Tvö alvar­leg umferð­ar­slys á sama veg­ar­kafla á Tenerife

Aðeins átta mínútur liðu milli slysanna.
Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Pólitík

Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

Heimur

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Hjólaskautakonan Shrishti Dharmendra Sharma bætti eigið met í limbóskautun
Heimur

Amma skotin í höf­uðið og keyrt yfir átta

Heimur

Pútín hótar „sárs­auka­fullum“ hefndum vegna árása á Krímbrúna

Heimur

Shenk varar við nýju tíma­bili óstöð­ug­leika í tækni­málum

Heimur

Musk seg­ist ekki vera hluti af MAGA-hreyf­ingu Trumps

Heimur

Alvar­legar ásak­anir á hendur 15 ára syni raun­veru­leika­stjörnu