Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Ógnvekjandi umfang tölvuárásar á íslenskt hýsingarfyrirtæki

Fjár­sterkir tölvu­þrjótar taldir hafa ráð­ist á 1984

Tölvuárás
Tölvu­árás Hýs­ing­ar­fyr­ir­tækið 1984 hefur stöðvað alla þjón­ustu tíma­bundið eftir tölvu­árás á inn­viði þess.

Stjórn­endur íslenska hýs­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins 1984 hafa stöðvað alla þjón­ustu þess tíma­bundið eftir umfangs­mikla og alvar­lega tölvu­árás á inn­viði fyr­ir­tæk­is­ins. Fyrstu nið­ur­stöður rann­sóknar benda til þess að um vel skipu­lagða og tækni­lega háþró­aða árás sé að ræða. Fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins segir í sam­tali við RÚV árás­ina hafa verið fram­kvæmd af miklum hraða og að fjár­sterkir aðilar standi að baki henni.

Í sam­eig­in­legri til­kynn­ingu frá 1984 og net­ör­ygg­is­sveit­inni CERT-IS kemur fram að umfang árás­ar­innar sé enn til rann­sóknar. Ákvörð­unin um að loka tíma­bundið fyrir alla þjón­ustu var tekin í örygg­is­skyni, meðal ann­ars til að tak­marka mögu­leg frek­ari áhrif árás­ar­innar, tryggja að hægt sé að rann­saka atvikið með full­nægj­andi hætti og koma í veg fyrir að þjón­usta verði tekin aftur í notkun áður en öryggi hennar hefur verið tryggt.

Árásin hefur áhrif á tugi þús­unda við­skipta­vina. Fyr­ir­tækið hýsir stóran hluta íslenskra vef­síðna og er að sögn Marðar Áslaug­ar­sonar, fram­kvæmda­stjóra 1984, lík­lega stærsti vist­un­ar­að­ili vef­síðna og tölvu­pósts hér á landi. Árásin beind­ist að fram­línu­þjón­ustu fyr­ir­tæk­is­ins.

Gífurlega vel fjármögnuð árás

Mörður segir árás­ina mjög alvar­lega og að aug­ljóst sé að fjár­sterkir aðilar standi að baki henni.

„Þetta eru atvinnu­menn og þetta er senni­lega gíf­ur­lega vel fjár­mögnuð árás. Þar erum við að tala um tugi millj­óna í gervi­greind­ar­kostnað. Þetta gerð­ist með slíkum hraða að maður hefur aldrei einu sinni heyrt um neitt slíkt,“ segir hann.

Hann segir að ákveðnar kenn­ingar séu uppi um hvaða hópar kunni að hafa staðið að árásinni, en ekk­ert hafi verið stað­fest. Málið sé til rann­sóknar og CERT-IS og Fjar­skipta­stofa vinni að því með fyr­ir­tæk­inu.

Þjónusta verður opnuð smám saman

Samkvæmt Mörði verður lok­unin ekki langvar­andi. Stefnt sé að því að koma tölvu­pósts- og DNS-þjón­ustu aftur í gang fljót­lega, en sú þjón­usta verður starf­rækt undir sér­stöku eft­ir­liti. Önnur þjón­usta verður tekin aftur í notkun í áföngum þegar full­víst þykir að gögn séu örugg og öryggi við­skipta­vina tryggt.

„Við byrjum á algerri lokun en hún verður stutt. Svo fer póst­þjón­usta og DNS-þjón­usta aftur í samt lag mjög fljót­lega og smám saman mjökum við inn þjón­ust­unni þegar við erum orðnir vissir um að öll gögn séu örugg og öryggi okkar við­skipta­vina tryggt. En þetta mun hafa mikil áhrif. Þetta er mjög alvar­legt atvik,“ segir Mörður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Dómurinn taldi framburð Alexandros Katsanos ótrúverðugan og hafið yfir skynsamlegan vafa að hann hefði vitað af efnunum.
Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Fólk

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum