Matvælastofnun varar við hveiti frá Valsemöllen A/S vegna myglueiturs yfir mörkum. Innflytjendur Krónan, Aðföng og Lífland hafa innkallað vörurnar í samráði við heilbrigðiseftirlitin vegna ófullnægjandi aðstæðna hjá kornbirgja. Hveitið Best fyrir dagsetning var í september 2026.
Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki. Vörunni má farga eða fá nýja vöru í verslunum.
Innköllun er eingöngu fyrir neðangreindar framleiðulotur og vörumerki.
- Vörumerki: Kornax
- Vöruheiti: Kornax rautt, blátt og heilhveiti
- Nettómagn: 2kg
- Geymsluskilyrði: Þurrvara
- Framleiðandi: Valsemøllen A/S, Køge. Framleitt fyrir Lífland ehf. á Íslandi
- Nettóþyng: 2 kg
- Best fyrir dagsetning: 15-09-2026 og 29-09-2026 (blátt og rautt hveiti), 15-09-2026 (heilhveiti)
- Dreifingaraðilar: Allar helstu matvöruverslanir landsins.
- Vöruheiti: First Price hveiti
- Vörumerki: First Price
- Nettómagn: 2 kg
- Framleiðandi: Valsemøllen A/S
- Innflytjandi: Krónan, Dalvegi 10-14
- Framleiðsluland: Danmörk
- Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: 01.09.2026 og 15.09.2026
- Geymsluskilyrði: Þurrvara
- Dreifing: Verslanir í eigu Krónunnar
- Vörumerki: Euro Shopper
- Vöruheiti: Hveiti
- Nettómagn: 2 kg
- Umbúðir: Pappír
- Strikamerki: 8719323800915
- Best fyrir dagsetning: 15-09-2026
- Geymsluskilyrði: Þurrvara
- Framleiðandi: Valsemøllen A/S í Køge Danmörku
- Dreifing: Allar verslanir Bónus og Hagkaups, Stórkaup og verslanir Olís Neskaupsstað, Varmahlíð, Gullinbrú,og Norðlingaholt
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir