Karlmaður hefur verið dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir tvennan þjófnað. Hann stal að minnsta kosti 25 flíkum úr gámi við verslun Zo-On í Kópavogi í júní 2024 og plokkfiski úr verslun Krónunnar í Reykjavík í febrúar 2025.
Samkvæmt dómnum stal maðurinn flíkunum ásamt öðrum manni þriðjudaginn 11. júní 2024. Verðmæti fatnaðarins er óþekkt. Síðara brotið framdi hann föstudaginn 21. febrúar 2025 þegar hann tók plokkfisk að verðmæti 1.699 krónur ófrjálsri hendi.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu gaf út ákæru í málinu 14. júlí 2026. Maðurinn mætti ekki við þingfestingu og hafði ekki boðað forföll.
Samkvæmt sakavottorði hafði maðurinn ekki áður gerst sekur um refsivert athæfi. Refsingin fellur niður að tveimur árum liðnum haldi hann almennt skilorð.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir