Niðurstöður alþjóðlegrar rannsóknar vekja vonir um að lyfið AR1001 geti hægt á framgangi Alzheimerssjúkdóms. Lyfið, sem er í töfluformi, verkar á svipaðan hátt og Viagra og virðist geta hægt á vitrænni hnignun um 31 prósent hjá fólki á fyrstu stigum sjúkdómsins sem tekur ekki önnur lyf við Alzheimer.
Rannsóknin var gerð í 13 löndum og niðurstöðurnar voru kynntar á alþjóðlegri ráðstefnu um klínískar rannsóknir á Alzheimer í Boston.
Suðurkóreska lyfjafyrirtækið AriBio þróaði lyfið, sem er í sama lyfjaflokki og Viagra. Það víkkar æðar og eykur þannig blóðflæði til heilans. Í þriðja stigs rannsókninni var hnignun 604 þátttakenda sem tóku ekki önnur lyf við Alzheimer 31 prósenti hægari þegar þeir tóku lyfið.
Áhrifin voru hins vegar ekki tölfræðilega marktæk þegar litið var á allan hóp rannsóknarinnar, þar á meðal þá sem tóku önnur lyf við sjúkdómnum.
Sérfræðingar sem komu ekki að rannsókninni segja niðurstöðurnar mjög lofandi en vara jafnframt við því að draga of víðtækar ályktanir á þessu stigi.
Prófessor Tara Spires-Jones við Edinborgarháskóla segir að lyfið virðist bæði auka blóðflæði til heilans og mögulega örva ferla í heilafrumum sem tengjast námi og minni.
Sheona Scales, rannsóknarstjóri hjá Alzheimer’s Research UK, segir niðurstöðurnar hvetjandi og mikilvægt skref í leitinni að nýjum meðferðarúrræðum. Hún bendir þó á að ávinningurinn hafi aðeins verið tölfræðilega marktækur hjá þeim þátttakendum sem ekki tóku önnur algeng Alzheimer-lyf.
Alzheimer er algengasta form heilabilunar og talið er að 153 milljónir manna um allan heim verði með sjúkdóminn árið 2050. Enn er engin lækning við honum.
Frekari rannsóknir nauðsynlegar
Þótt niðurstöðurnar veki vonir er enn óljóst hvers vegna lyfið virðist aðeins hafa marktæk áhrif hjá þeim sem taka ekki önnur lyf við Alzheimer. Ekki er heldur hægt að fullyrða á grundvelli þessarar rannsóknar að lyfið muni nýtast öllum sem eru með sjúkdóminn.
Meðal aukaverkana voru niðurgangur, svimi og yfirlið. Sérfræðingar benda á að þær geti verið sérstaklega varasamar fyrir eldra fólk, meðal annars vegna aukinnar hættu á byltum.
Lyfjafyrirtækið AriBio hyggst ræða við bandarísk heilbrigðisyfirvöld um hvort niðurstöðurnar nægi til að sækja um samþykki fyrir lyfinu eða hvort þörf verði á frekari rannsóknum.
Sérfræðingar segja að ef lyfið reynist öruggt og áhrifaríkt gæti það orðið nýr valkostur í meðferð við Alzheimer, ekki síst þar sem það er tekið í töfluformi einu sinni á dag.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir