Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, tókust á um efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag. Þegar ráðherrann lauk máli sínu kallaði Sigmundur úr salnum: „Útúrsnúningar og þvæla.“ Þorgerður svaraði: „Æi, elsku kallinn.“ Forseti Alþingis bað þá um hljóð í salnum og minnti þingmenn og ráðherra á að virða ræðutímann en gripið var reglulega fram í fyrir Þorgerði á meðan ræðu hennar stóð yfir.
Sigmundur hóf orðaskiptin á að rifja upp ummæli Þorgerðar um að ríkisstjórnin væri rétt að byrja. Hann sagði stýrivexti fasta í átta prósentum og atvinnuleysi fara vaxandi. Ef vextir og verðbólga lækkuðu á næsta ári gæti skýringin að hans mati verið sú að hagkerfið væri að kólna.
„Er það aðferðin sem þessi ríkisstjórn ætlaði að beita til að ná niður vöxtum og verðbólgu, að setja einfaldlega allt hagkerfið í frost?“ spurði Sigmundur.
Þorgerður sagði aukin ríkisútgjöld og skattalækkanir vera „eitraða blöndu“ og lagði áherslu á að ríkisstjórnin ætlaði að reka ríkissjóð með afgangi. Hún sneri síðan gagnrýni Sigmundar að hans eigin ríkisstjórn. Samkvæmt tölum sem hún lagði fram hefðu skatttekjur numið allt að 29,2 prósentum af landsframleiðslu í hans tíð en í fjárlögum áranna 2025 til 2027 væri hlutfallið undir 24 prósentum. „Þetta er bara gargandi vinstri stjórn sem var hérna 2013–2016,“ sagði Þorgerður um stjórn Sigmundar.
Sigmundur sakaði ráðherrann um að gera stjórnarandstöðunni upp skoðanir. „Ég kannast ekki við að stjórnarandstaðan hafi talað fyrir auknum ríkisútgjöldum, þvert á móti.“ Hann sagði tekjur ríkisins hafa aukist í tíð sinnar ríkisstjórnar án þess að skattar hefðu verið hækkaðir. Núverandi stjórn hefði hins vegar bæði aukið útgjöld og hækkað skatta.
Þorgerður tók viðhald vega sem dæmi um útgjöld sem ríkisstjórnin hefði aukið. Framlögin hefðu farið úr 12 milljörðum króna í 17 milljarða og stefnt væri að því að hækka þau í 23 milljarða. Þá nefndi hún fjárfestingu í hjúkrunarheimilum til að létta á Landspítalanum. „Við erum einfaldlega í miðri á, þessi ríkisstjórn. Við ætlum ekkert að stoppa þar. Við ætlum að klára verkefnin.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



























Athugasemdir