Söng- og leikkonan Tinna Óðinsdóttir minnist þess í einlægri færslu á Facebook að tíu ár eru liðin frá því hún varð fyrir nauðgun. Hún segir reynsluna hafa mótað sig á ýmsan hátt og haft meiri áhrif á líf sitt en hún gerði sér nokkurn tíma grein fyrir á sínum tíma. Færslan, sem vakið hefur gríðarlega athygli, byrjar með orðunum: „Í dag eru 10 ár síðan ég varð fyrir nauðgun“.
Tinna birtir gamla mynd af sér með færslunni og segist sjá þar unga stelpu sem hafi ekki haft hugmynd um hvað biði hennar.
„Stelpu sem hafði ekki hugmynd um hvað beið hennar, hversu stórt verkefni hún ætti fyrir höndum og hversu mikil áhrif þessi reynsla myndi hafa á líf hennar. Ekki bara þá, heldur líka öll árin sem á eftir komu,“ skrifar hún.
Hún segir sig oft hafa reynt að telja sér trú um að hún væri búin að vinna úr reynslunni og komin yfir það sem gerðist. Raunin sé þó önnur.
„Sannleikurinn er sá að maður kemst kannski ekki bara yfir svona hluti. Maður lærir að lifa með þeim. Maður heldur áfram, vex, breytist og byggir sér líf, en reynslan verður samt einhvers staðar hluti af manni.“
Tinna segir daginn alltaf nokkuð þungan og að hugurinn leiti sérstaklega til ungu stúlkunnar sem hún var fyrir áratug.
„Hvað hún var ung, hvað hún þurfti að takast á við og hvað mig langar mikið að geta faðmað hana og sagt henni að þetta verði allt í lagi,“ skrifar hún.
„Það má alveg vera hluti af sögu minni“
Í færslunni segist Tinna vilja gefa sjálfri sér, og stúlkunni sem hún var, rými til að minnast þess sem hún hefur gengið í gegnum og hversu langt hún hafi komist síðan.
Hún leggur áherslu á að nauðgunin skilgreini hana ekki, þótt hún sé hluti af lífssögu hennar.
„Það sem gerðist skilgreinir mig ekki, en það er hluti af sögu minni. Og það má alveg vera þannig,“ skrifar Tinna að lokum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir