Kaupmáttur grunntímakaups hefur aukist um 5,8 prósent frá því núverandi kjarasamningalota hófst í mars 2024. Á sama tímabili hækkaði grunntímakaup á vinnumarkaðnum í heild um 18,7 prósent en verðlag um 12,2 prósent.
Þetta kemur fram í haustskýrslu kjaratölfræðinefndar 2026, þar sem farið er yfir þróun launa, vinnumarkaðar og efnahagsmála.
Launahækkanir hafa verið mismunandi eftir mörkuðum. Frá upphafi kjarasamningalotunnar til júní 2026 hækkaði grunntímakaup um 18,4 prósent á almennum vinnumarkaði, 19,6 prósent hjá ríkinu, 18,8 prósent hjá Reykjavíkurborg og 20,1 prósent hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur.
Regluleg mánaðarlaun fólks í fullu starfi voru að meðaltali 935 þúsund krónur í maí 2026. Miðgildi launanna var 843 þúsund krónur.
Atvinnuleysi yfir meðaltali OECD
Í skýrslunni kemur fram að hagvöxtur hafi verið lítill síðustu ár og dregið hafi úr spennu á vinnumarkaði. Atvinnuleysi er enn tiltölulega lágt í alþjóðlegum samanburði en hefur farið vaxandi. Á öðrum ársfjórðungi 2026 var það í fyrsta sinn frá árinu 2010 yfir meðaltali OECD.
Verðbólga hefur jafnframt reynst þrálátari en spár gerðu ráð fyrir og mældist 5,9 prósent í október. Horfur um verðbólgu ráðast meðal annars af þróun stríðsátaka og áhrifum þeirra á alþjóðlegt orkuverð.
Þrátt fyrir þetta er fjárhagsstaða heimila almennt sterk samkvæmt skýrslunni. Kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann hefur aukist og skuldir heimila lækkað sem hlutfall af ráðstöfunartekjum.
Greining á launaskriði í fyrsta sinn
Nýjung í skýrslunni að þessu sinni er greining á launahækkunum umfram þær hækkanir sem kjarasamningar kveða á um. Markmiðið er að varpa ljósi á umfang og þróun svokallaðs launaskriðs.
Þar er meðal annars birt frummat á innbyggðum hækkunum í kjarasamningum, sem skýrast að stórum hluta af sjálfvirkum launahækkunum vegna starfsaldurs. Einnig er fjallað sérstaklega um launaþróun eftir launastigi.
Núverandi kjarasamningslota hófst í mars 2024 og hafa um 260 kjarasamningar verið gerðir á tímabilinu. Þeir ná til meginhluta launafólks á almennum og opinberum vinnumarkaði og voru almennt gerðir til fjögurra ára.
Forsenduákvæði samninganna vegna verðbólgu í ágúst 2026 stóðust ekki, en í október náðust samkomulög um að samningarnir héldu gildi sínu.
Haustskýrslu kjaratölfræðinefndar og fylgigögn má nálgast á vef nefndarinnar, ktn.is.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



























Athugasemdir