Einbýlishús við Dalsbyggð 15 í Garðabæ er komið á sölu með 219,5 milljóna króna ásettu verði. Húsið var reist árið 1978 eftir teikningum Kjartans Sveinssonar og stendur á stórri, gróinni lóð miðsvæðis í bænum.
Eignin er 242,2 fermetrar samkvæmt sölulýsingu, þar af er bílskúrinn um 50 fermetrar. Húsið er á þremur pöllum og hefur verið mikið endurnýjað, meðal annars eldhús og baðherbergi.
Á miðpalli eru þrjú svefnherbergi, baðherbergi og gestasnyrting. Fataherbergi er inn af aðalsvefnherberginu. Svefnherbergin voru áður fjögur og samkvæmt sölulýsingu er hægt að endurheimta fyrra skipulag. Úr forstofunni er gengið um nýja rennihurð út á timburverönd og eru skjólsælar verandir bæði framan og aftan við húsið.
Á efsta palli eru eldhús, borðstofa og stofa með mikilli lofthæð, arni og útgengi á svalir. Í eldhúsinu eru steinborðplötur og ný tæki, þar á meðal uppþvottavél og tvöfaldur ísskápur.
Á neðsta palli er þvottahús með sturtu. Helmingi bílskúrsins hefur verið breytt í tveggja herbergja rými með eldhúskróki og í hinum helmingnum er innkeyrsluhurð með rafmagnsopnara. Inn af bílskúrnum er um 30 fermetra óskráð rými með takmarkaðri lofthæð. Við húsið er upphitað bílaplan sem rúmar þrjá bíla.



Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir