Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins og fyrrum ráðherra, lagði til á Alþingi í gær að tímabundnum og þrepaskiptum skyldusparnaði yrði beitt til að draga úr peningamagni í umferð. Hún sagðist hafa rætt hugmyndina við fjármálaráðherra og gagnrýndi ákvörðun Seðlabankans um að halda stýrivöxtum óbreyttum.
„Í gær hafði Seðlabankinn tækifæri til að lækka vexti en kaus að gera það ekki,“ sagði Ásthildur Lóa. Hún nefndi sem dæmi að heimili með 50 milljóna króna húsnæðislán greiddi um 240 þúsund krónum meira á mánuði en það myndi greiða af láni með fjögurra prósenta vöxtum.
Þau sem mest eiga myndu leggja meira af mörkum
Samkvæmt tillögu Ásthildar Lóu yrði skyldusparnaðurinn lagður á tímabundið þegar draga þyrfti úr peningamagni í umferð. Framlag heimilanna myndi ráðast af eigna- og skuldastöðu þeirra.
„Þessi leið yrði mun skilvirkari en vaxtahækkanir því að öll heimili myndu leggja sitt af mörkum, ekki bara þau skuldugu,“ sagði hún.
Ásthildur Lóa sagði að fjármununum yrði skilað til heimilanna að ákveðnum tíma liðnum. Hún nefndi að fólk gæti tekið sparnaðinn út til að standa straum af viðhaldi eða framkvæmdum á heimilinu eða fært hann í séreignarsparnað. Útfærsla þess væri þó seinni tíma mál.
Segir Seðlabankann kominn í öngstræti
„Seðlabankinn er kominn í öngstræti,“ sagði Ásthildur Lóa. Hún hélt því fram að langvarandi vaxtahækkanir hefðu ýtt undir verðbólgu og að skuldugustu heimilin hefðu borið þungann af stefnunni.
„Skuldug heimili eiga það inni hjá okkur að leita nýrra leiða. Gerum það í þeirra nafni. Við skuldum þeim það,“ sagði hún.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


























Athugasemdir