Atli Þór Fanndal Guðlaugsson, verkefnastjóri á skrifstofu rektors við Háskólann á Bifröst, gagnrýnir meirihlutann í borgarstjórn Reykjavíkur harðlega vegna aðstæðna íbúa hjólhýsabyggðarinnar á Sævarhöfða. Hann segir það „einstaklega ógeðfellt“ að fólk skuli þurfa að þola vatns- og rafmagnsleysi í vetrarkulda og telur að málið sýni raunveruleg viðhorf Viðreisnar til fátæks og jaðarsetts fólks.
Atli skrifar færsluna í tilefni fréttar RÚV um íbúa á Sævarhöfða sem lýsti því að hitinn í hjólhýsi sínu hefði farið niður í tvær gráður undir frostmarki. Íbúar svæðisins hafa verið án vatns og rafmagns eftir að borgin ákvað að loka fyrir þjónustuna 1. nóvember.
Atli beinir gagnrýni sinni sérstaklega að Viðreisn og segir flokkinn hafa verið að dala í skoðanakönnunum á sama tíma og þingmenn hafi yfirgefið þingflokkinn.
„Á vakt Viðreisnar eru slumlord-aðferðir à la Trump notaðar gegn jaðarsettu fólki. Skrúfa fyrir vatn og rafmagn í vetrarkulda,“ skrifar hann.
Hann segir þetta vera sérstaklega ógeðfellt í ljósi þess að flokkurinn hafi gert mannúð, ábyrgð og frjálslyndi að einkunnarorðum sínum.
„Fátækt fólk er ekki velkomið“
Atli gagnrýnir jafnframt stefnu Viðreisnar í málefnum innflytjenda og segir að þrátt fyrir yfirlýsingar um að styrkja kerfið og gera það gagnsærra hafi engar breytingar verið gerðar sem bæti stöðu innflytjenda.
„Mynstrið er alltaf það sama: fátækt fólk er ekki velkomið,“ skrifar hann og tekur fram að gagnrýni sín beinist ekki eingöngu að fátæku útlendingafólki heldur fátæku fólki almennt.
Hann segir að sama viðhorf birtist í stjórnmálum flokksins bæði á Alþingi og í borgarstjórn.
Atli segir jafnframt að íbúar hjólhýsabyggðarinnar séu í viðkvæmri stöðu nú þegar veturinn sé genginn í garð. Hann vísar sérstaklega til þess að tillögu um að opna aftur fyrir vatn og rafmagn á svæðinu hafi verið vísað frá í borgarráði.
„Það var ekki bara skrúfað fyrir vatnið, heldur var líka ákveðið að vísa frá tillögu um að opna fyrir vatnið og rafmagnið vegna kulda. Meirihlutinn í Reykjavík mun ekki geta þvegið hendur sínar ef þetta endar illa,“ skrifar hann.
„Það er enginn öruggur í samfélagi þar sem stjórnmálin keppa í grimmd“
Atli segir enga mannúð felast í því að koma fram við fólk eins og vandamál sem þurfi að losna við.
„Blaður um frjálslyndi og ábyrgð breytir engu um þá andlegu fátækt sem þarf til að reka slíka stefnu og hrósa sér fyrir siðferði og ábyrgð,“ skrifar hann.
Hann gagnrýnir einnig þá sem styðji aðgerðirnar vegna þess að þær beinist að öðrum hópum samfélagsins.
„Þið sem klappið fyrir svona sóðaskap vegna þess að hann beinist bara að öðru fólki og útlendingum þurfið verulega á því að halda að kíkja á bókasafnið og lesa söguna,“ segir Atli.
Hann lýkur færslunni með alvarlegri aðvörun:
„Það er enginn öruggur í samfélagi þar sem stjórnmálin leitast við að keppa í grimmd.“
Samkvæmt frétt RÚV eru enn tólf hjólhýsi á Sævarhöfða. Íbúarnir fengu tilkynningu í júlí um að svæðinu yrði lokað 1. nóvember eftir að nýr meirihluti í borgarstjórn ákvað að nýta uppsagnarákvæði í samningi um fyrirhugaða hjólhýsabyggð í Gufunesi.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



























Athugasemdir