Bandaríski rithöfundurinn, fyrirlesarinn, tónlistarmaðurinn og tæknigagnrýnandinn David Shenk telur að heimurinn sé að ganga inn í nýtt tímabil ógnvekjandi óstöðugleika í tæknimálum. Að hans mati kunna nýlegar stórfelldar bilanir hjá Microsoft, bandarísku flugmálastjórninni, bönkum, United Airlines og Apple að vera merki um þróun sem gæti varað í marga mánuði eða jafnvel ár.
Shenk reifar þessa kenningu í Facebook-færslu þar sem hann segir undanfarnar vikur hafa verið óhugnanlegar fyrir Bandaríkjamenn. Það sem honum þyki einna verst sé að enginn hafi getað útskýrt hvers vegna svo margar stórar tæknibilanir hafi átt sér stað á sama tíma.
„En nú er loksins að koma fram heildstæð skýring,“ skrifar hann og telur að gervigreind sé lykilatriði í þessari þróun.
Samkvæmt kenningu Shenk hefur gervigreind þróast svo hratt að hún geti nú stöðugt greint veikleika og öryggisgalla í mikilvægum hugbúnaðarkerfum. Vandinn sé sá að tölvuþrjótar og aðrir óprúttnir aðilar séu að uppgötva sömu veikleika á svipuðum tíma og þeir sem bera ábyrgð á öryggi kerfanna.
„Góðu aðilarnir hafa ótrúlega stuttan tíma til að laga þessa veikleika og koma í veg fyrir netárás sem getur lamað kerfin,“ skrifar hann.
Öryggisráðstafanirnar geti sjálfar valdið bilunum
Shenk segir að þessi nýja staða neyði fyrirtæki til að bregðast við með áður óþekktum hraða. Til að koma í veg fyrir árásir þurfi þau að setja inn uppfærslur og lagfæringar áður en nægur tími gefst til að prófa þær og tryggja að þær virki sem skyldi.
„Þessi aukni hraði neyðir þau, kaldhæðnislega, til að gera eigin hugbúnað óstöðugri,“ skrifar hann.
Hann telur því að stórfelldar bilanir í tæknikerfum séu ekki endilega afleiðing beinna netárása heldur geti þær stafað af þeim miklu öryggisráðstöfunum sem fyrirtæki þurfi nú að grípa til til að verjast slíkum árásum.
„Viðkvæmu hugbúnaðarkerfin okkar verða fyrir stórfelldum bilunum, ekki endilega vegna beinna árása heldur vegna þeirrar gríðarlegu varnarstöðu sem við neyðumst nú til að taka til að koma í veg fyrir árásir,“ skrifar hann.
Shenk telur að þetta nýja tímabil sé rétt að hefjast og að óstöðugleikinn geti versnað áður en ástandið batnar.
Hann sér þó fyrir sér að gervigreind geti síðar orðið mikilvægur þáttur í að byggja upp öruggari og stöðugri tölvukerfi, þar sem hægt verði að finna veikleika og laga þá hratt án þess að stefna rekstri kerfanna í hættu.
„En við erum ekki komin þangað enn. Sérfræðingar telja að það geti tekið tíma að ná þeim áfanga – mánuði eða ár,“ skrifar Shenk og lýkur færslunni með orðunum: „Spennið beltin.“
David Shenk er bandarískur rithöfundur, fyrirlesari og blaðamaður sem hefur meðal annars skrifað um áhrif tæknibyltingarinnar á samfélagið. Hann er höfundur bókarinnar Data Smog, þar sem hann fjallaði um upplýsingaflóð og áhrif tækninnar á mannlífið.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir