Átján Palestínumenn særðust í tveimur árásum ísraelskra landtökumanna á Vesturbakkanum á mánudag og þriðjudag. 72 ára palestínsk kona var skotin til bana og tíu manns særðust í árás nærri Jeríkó á þriðjudag, en átta Palestínumenn særðust þegar ísraelskur landtökumaður ók bifreið sinni á hóp fólks í bænum Tuqu daginn áður.
Árásirnar eru meðal nýjustu dæma um ofbeldi landtökufólks gegn palestínskum íbúum á Vesturbakkanum.
Sjötíu og tveggja ára palestínsk amma var skotin til bana og tíu aðrir særðust þegar vopnað ísraelskt landtökufólk réðst á palestínska íbúa í nágrenni Jeríkó á Vesturbakkanum á dögunum. Árásin átti sér stað í hverfinu Duyuk al-Tahta snemma á þriðjudag, en þar höfðu ísraelskir landtökumenn nýverið tekið yfir nokkur hús.
Konan hét Fadda Mohammed Fheidat. Vitni segja að hópur landtökufólks hafi byrjað að skjóta fyrir utan heimili hennar. Palestínskir íbúar hafi reynt að verja sig með því að kasta grjóti, en fleiri landtökumenn hafi þá komið á vettvang og skotið á hús í hverfinu, þar á meðal heimili konunnar.
Að sögn mágs hennar, Ahmed Aref, varð hún fyrir skoti í höfuðið þar sem hún stóð fyrir utan hús sitt.
„Við fórum út úr húsinu eftir að hafa heyrt börnin hrópa. Svo fór allt úr böndunum. Landtökufólkið byrjaði að skjóta. Ég var inni í húsinu með gömlu konunni. Við fórum niður og hún var fyrir aftan mig. Hún stoppaði á þessum stað og ég gekk fram hjá henni. Ég leit til baka og hélt að hún stæði enn, en þegar ég leit aftur sá ég hana liggja á jörðinni og blóð rann úr höfði hennar. Sjáðu, blóðið hennar er hérna á veginum,“ sagði hann við Reuters.
Ísraelsher greindi frá því að verið væri að rannsaka atvik á svæðinu þar sem bæði Ísraelar og Palestínumenn hefðu særst. Herinn lýsti málinu hins vegar út frá ásökunum um að palestínskir menn hefðu ekið á ísraelskt ökutæki.
Hér má sjá myndskeið sem fyrrverandi þyrluhermaður Bandaríkjahers tjáir sig á tilfinningaþrunginn hátt um skotárásina en fjölskylda vinkonu hans varð fyrir árásinni.
Átta særðust þegar landtökumaður ók á hóp Palestínumanna
Daginn áður, á mánudag, særðust átta Palestínumenn þegar ísraelskur landtökumaður ók bifreið sinni á hóp fólks í bænum Tuqu, suðaustan við Betlehem.
Samkvæmt öryggisyfirvöldum höfðu Palestínumenn safnast saman við umferðarslys í Khirbet ad-Deir þegar maðurinn ók á hópinn. Þá er greint frá því að hann hafi einnig ekið á fólk sem hafði komið til að aðstoða þá sem fyrst urðu fyrir bílnum.
Samhliða þessu bárust fréttir af fleiri árásum landtökufólks. Palestínskur unglingur var meðal annars beittur ofbeldi vestan við Jeríkó og tveir bílar með landtökufólki eltu vegfarendur á vegum í nágrenninu. Unglingurinn var sagður hafa verið barinn harkalega.
Ísraelskar hersveitir fóru einnig inn í þorpið Yasuf, austan við Salfit, þar sem þær leituðu í nokkrum húsum og beittu meðal annars táragasi og hljóðsprengjum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir