Tveir ökumenn voru vistaðir í fangageymslu í gærkvöldi og í nótt eftir afskipti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Annar þeirra var handtekinn eftir umferðaróhapp en hinn er einnig grunaður um sölu fíkniefna.
Í dagbók lögreglu kemur fram að tilkynnt hafi verið um ökumann sem ók utan í aðra bifreið og fór af vettvangi. Skömmu síðar barst önnur tilkynning um bifreiðina. Ökumaðurinn var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna og vistaður í fangageymslu.
Lögregla stöðvaði einnig ökumann sem grunaður er um akstur undir áhrifum fíkniefna og sölu þeirra. Hann var vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.
Þrír aðrir ökumenn voru látnir lausir að lokinni sýnatöku. Tveir þeirra voru grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða vímuefna og sá þriðji um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Brotist var inn í bifreið í austurbæ Reykjavíkur og sást sá sem er grunaður um innbrotið hlaupa af vettvangi. Lögregla fór þegar á staðinn og leitaði að honum en hann fannst ekki.
Lögregla var einnig kölluð til vegna þjófnaðar í verslun og tók skýrslu á vettvangi.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir