Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður utan flokka og fyrrum ráðherra, kallaði eftir því á Alþingi í gær að bótasjóðir tryggingafélaganna yrðu gerðir upp. Hann gagnrýndi jafnframt eftirlit Seðlabankans með félögunum og lagði til að fjármunir sem stæðu eftir við uppgjör gætu meðal annars nýst til að fjármagna gjafsókn og efla heilbrigðisþjónustu.
„Það sem er furðulegt við þetta allt saman er að þessir sjóðir eru aldrei gerðir upp,“ sagði Guðmundur Ingi undir liðnum störf þingsins.
Hann sagði heildareignir tryggingafélaganna hafa numið 360 milljörðum króna í febrúar síðastliðnum. Hann tók dæmi af umferðartjóni sem væri upphaflega metið á 100 milljónir króna en endanlegar bætur næmu 50 milljónum. Hann spurði hvað yrði um mismuninn og sagði að með ávöxtun gætu slíkar fjárhæðir vaxið verulega.
„Þarna er bara fjármunum safnað saman sem tryggingafélögin fá að leika og gambla með á markaði,“ sagði hann.
Guðmundur Ingi sagði að Alþingi bæri ábyrgð á að taka málið til skoðunar. Hann vísaði til þess að sjóðir af þessu tagi væru, að hans sögn, gerðir upp á 10 til 15 ára fresti í öðrum löndum. Auk gjafsóknar nefndi hann Grensásdeild Landspítala og önnur sjúkrahús sem taka á móti slösuðu fólki.
„Við eigum að gera þetta upp, fara að dæmi annarra þjóða og sjá til þess að þessir peningar safnist ekki þarna fyrir og verði eingöngu notaðir til ávöxtunar fyrir tryggingafélögin,“ sagði hann.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


























Athugasemdir