Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Innlent

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Vigtuð vikulega og sett á matarplan aðeins tíu ára gömul

Söng­konan Gugusar lýsir nið­ur­læg­ingu og ógn­andi fram­komu þjálf­ara á skauta­æf­ingum í æsku og hvetur for­eldra til að fylgj­ast með líðan barna í íþróttum.

Líðan barna
Líðan barna Gugusar hvetur for­eldra til að fylgj­ast með líðan barna sinna í íþróttum og spyrja hvort þau hafi gaman af æfing­unum. Mynd: TikTok-skjáskot

Söng­konan Guðlaug Sóley Hösk­ulds­dóttir, sem gengur undir lista­manna­nafn­inu Gugusar, segir frá erf­iðri reynslu sinni af list­skautum í æsku í mynd­skeiði sem hún birti á TikTok í gær. Hún lýsir meðal ann­ars miklum útlits- og þyngd­ar­þrýst­ingi, nið­ur­læg­ingu og ógn­andi fram­komu þjálf­ara þegar hún var barn.

Gugusar segir að þegar hún var tíu ára hafi hún verið vigtuð viku­lega og fengið nýtt mat­ar­plan ef hún þyngd­ist. Þá hafi henni verið hótað því að hárið yrði klippt af henni ef hún færi ekki í klipp­ingu, þar sem hárið væri talið of þungt.

Hún segir einnig að þjálf­ari hafi öskrað á hana ef hún náði ekki að fram­kvæma ákveðin skauta­at­riði jafn vel og systir hennar, sem var Íslands­meist­ari í grein­inni.

„Af hverju var ég ekki að skauta eins og hún?“ segir Gugusar að hún hafi verið spurð.

Hún rifjar jafn­framt upp atvik þar sem þjálf­ari rak hana af æfingu. Þegar hún hafði farið af svell­inu kom þjálf­ar­inn á eftir henni og skip­aði henni að fara út úr höll­inni. Hún hafi því þurft að hlaupa út úr skauta­höll­inni og mátt ekki horfa á æfing­una.

Þá segir hún að einn þjálf­ar­inn hafi síðar verið rek­inn eftir að upp komst að hann mætti ölv­aður á morg­un­æf­ingar.

Hljóp út í strætó af ótta við þjálfara

Gugusar segir að hún hafi heyrt enn verri sögur frá vin­konum sínum sem æfðu einnig skauta og að hún hafi sjálf í raun sloppið betur en margar þeirra.

Hún nefnir meðal ann­ars sögur af þjálf­urum sem hafi átt í kyn­ferð­is­legum sam­skiptum við eða reynt við mæður þeirra sem æfðu. Þá hafi lík­am­leg refs­ing verið við­höfð.

„Ef maður strekkti ekki nógu vel þá var maður rass­skelltur. Karla­þjálf­arar að rasskella mig. Og við erum að tala um að ég er barn,“ segir hún.

Hún lýsir því einnig að henni hafi verið klipið og hótað. Eitt sinn hafi hún orðið svo hrædd við þjálf­ara að hún ákvað í miðri æfingu að hlaupa út, stökkva upp í strætó og taka hann heim.

Þegar hún var fimmtán ára fór hún í æfinga­ferð til Rúss­lands án þess að nokk­urt for­eldi fylgdi. Þar hafi þjálf­ar­arnir lagt hana í ein­elti einn dag­inn og hún grátið hástöfum. Hún segir þó að iðk­endum hafi ekki þótt í boði að sýna van­líðan eða gráta.

Mikill þrýstingur á mataræði og útlit

Í mynd­skeið­inu segir Gugusar að strangar reglur hafi gilt um matar­æði iðk­end­anna. Þeim hafi meðal ann­ars verið bannað að borða pasta, kökur og ýmis­legt annað. Á sama tíma hafi verið litið á átröskun sem tabú.

„Það var ekki eins og við værum að æfa fyrir Ólymp­íu­leik­ana“.

Í texta sem hún birti með mynd­skeið­inu setur hún reynsl­una í sam­hengi við spurn­ingu sem margir for­eldrar velti fyrir sér: Hvort þeir eigi að setja barn sitt í til­tekna íþrótt.

Hún segir mik­il­vægt að for­eldrar spyrji sig hvers vegna barnið vilji æfa íþrótt­ina, hvort það hafi sjálft áhuga og hvort það hafi gaman af æfing­unum. Einnig þurfi að skoða kostn­að­inn, bæði fjár­hags­legan og þann tíma sem íþróttin krefst af fjöl­skyld­unni.

Gugusar nefnir að íþróttir geti haft marg­vís­legan ávinn­ing, meðal ann­ars fyrir lík­am­lega heilsu, félags­færni, sjálfs­traust og skipu­lag. Á móti geti fylgt áhætta ef þjálfunin er of harka­leg eða óstöðluð, ef van­traust ríkir á milli þjálf­ara og iðk­enda eða ef of mik­ill þrýst­ingur er á árangur.

Hún hvetur for­eldra til að fylgj­ast með líðan barna sinna, spyrja hvort þau hafi gaman af æfing­unum og hvort þau vilji halda áfram. Þá sé mik­il­vægt að end­ur­meta ákvörð­un­ina reglu­lega, enda geti áhugi barna breyst.

„Ef ein­hver rauð flögg koma fram (óvið­eig­andi fram­koma, of mik­ill þrýst­ingur eða óör­ugg umgjörð) þá er rétt að stíga til baka,“ skrifar hún.

Að lokum býður hún fólki að senda sér spurn­ingar um hvernig ræða megi íþrótta­iðkun við börn og hvernig best sé að nálg­ast þátt­töku þeirra í íþróttum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Réttarmeinafræðingur í New York rannsakar andlát kvikmyndaleikstjórans Ray Tintori. Dánarorsök liggur ekki fyrir.
Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Hjónabandsráðgjafinn Molly Mindel segir að kynlíf eftir rifrildi geti aukið nánd en komi ekki í stað samtals um það sem olli ágreiningnum.

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Lyf í töflu­formi vekur vonir um hæg­ari fram­gang Alzheimers

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi