Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Stór­söngv­ari selur í Laug­ar­dalnum

Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Fólk

Heitustu jóla­gjaf­irnar 2026

Fólk

Katla stofnar fyr­ir­tæki með móður sinni

Innlent

Séra Hjördís stóð með for­eldrum Bryn­dísar Klöru á þeirra erf­ið­ustu stundum

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum

Minning

Borgþór Vest­fjörð Kjærne­sted er fall­inn frá

Heimur

Gam­an­leik­ar­inn Anthony Clark lát­inn

Innlent

Eft­ir­litið fór fram þrátt fyrir meint veik­indi hús­ráð­anda

Danskur hagfræðingur segir krónuna hafa verið misheppnaða tilraun í heila öld

Árið 2027 verður öld liðin frá því að Lands­bank­inn tók við hlut­verki seðla­banka. Lars Christensen segir þá sögu ekki vera árang­urs­sögu.

Seðlabanki Íslands
Seðla­banki Íslands Christensen fjallar um hlut­verk seðla­banka í þróun verð­bólgu á Íslandi. Mynd: Víkingur

Danski hag­fræð­ing­ur­inn Lars Christensen segir íslensku krón­una hafa reynst Íslend­ingum illa og bendir á að verð­bólga hér á landi hafi verið marg­falt meiri en í Danmörku síð­ustu hund­rað ár. Hann telur að stjórn­mála­menn og Seðla­banki Íslands hafi í ára­tugi stuðlað að verð­bólgu með stefnu sem hafi grafið undan verð­gildi gjald­mið­ils­ins.

Christensen fjallar um málið í færslu á Facebook þar sem hann rifjar upp sögu íslenska seðla­banka­kerf­is­ins. Hann bendir á að árið 2027 verði öld liðin frá því að Lands­banki Íslands tók við hlut­verki seðla­banka lands­ins.

„Ísland hefur brátt haft sinn eigin seðla­banka í 100 ár, því miður hefur það ekki verið árang­urs­saga,“ skrifar Christensen.

Hann bendir á að Íslend­ingar þurfi nú um 18 íslenskar krónur til að kaupa eina danska krónu. Það hafi þó ekki alltaf verið þannig.

Fyrstu íslensku pen­inga­seðl­arnir komu út árið 1886 og voru prent­aðir í Danmörku. Á þeim var mynd Krist­jáns níunda Dana­kon­ungs. Danskur kon­ungur var á íslenskum seðlum allt til árs­ins 1931.

Frá árinu 1904 gegndi hinn einka­rekni Íslands­banki í raun hlut­verki seðla­banka og var krónan þá gull­tryggð. Fram til árs­ins 1920 fylgdi íslenska krónan þeirri dönsku nokkurn veg­inn í hlut­fall­inu einn á móti einum.

Árið 1927 tók rík­is­bank­inn Lands­banki Íslands við hlut­verki seðla­banka.

Verðlag hækkað 29.400-falt

Christensen segir verð­bólgu á Íslandi hafa verið að með­al­tali 11 pró­sent á ári frá 1926 til 2025, sam­an­borið við 3,7 pró­sent í Danmörku.

Á þessu tíma­bili hafi verð­lag á Íslandi hækkað 29.400-falt en aðeins 38-falt í Danmörku.

Hann segir ástandið hafa verið sér­stak­lega slæmt á átt­unda ára­tugnum. Vextir hafi verið ákveðnir af stjórn­mála­mönnum og rík­is­sjóður fjár­magnað fjár­laga­halla með yfir­drætti hjá Seðla­bank­anum.

Þegar laun hækk­uðu hafi krónan verið felld til að tryggja sam­keppn­is­stöðu útflutn­ings­greina. Raun­vextir hafi um langt skeið verið nei­kvæðir um 10 til 20 pró­sent.

Afleið­ingin hafi verið mikil aukn­ing pen­inga­magns í umferð. Frá 1970 til 1990 hafi breitt pen­inga­magn, svo­kallað M3, auk­ist að með­al­tali um 39 pró­sent á ári, á sama tíma og verð­bólga var 33 pró­sent.

Á verstu árunum, frá 1978 til 1983, hafi pen­inga­magnið auk­ist um 65 pró­sent á ári. Árið 1983, þegar verð­bólgan náði hámarki í 84 pró­sentum, hafi pen­inga­magnið auk­ist um 79 pró­sent.

Segir stjórnmálamenn hafa grafið undan krónunni

Christensen vísar í kenn­ingar banda­ríska hag­fræð­ings­ins Roberts Hetzel, sem starf­aði hjá banda­ríska seðla­bank­anum í Richmond í meira en fjóra ára­tugi.

Hetzel leggur áherslu á að reglur og vinnu­brögð seðla­banka ráði miklu um þróun verð­bólgu. Ef seðla­banki stendur fast gegn verð­bólgu­á­hrifum tíma­bund­inna áfalla, svo sem launa­hækk­ana eða hækk­andi fisk­verðs, ættu þau aðeins að hafa áhrif á verð­lagið í eitt skipti. Ef bank­inn bregst hins vegar við með því að auka pen­inga­magn í umferð geti tíma­bundið verð­bólgu­á­fall þró­ast í við­var­andi verð­bólgu.

Christensen segir Ísland hafa valið síð­ar­nefndu leið­ina í ára­tugi með því að bregð­ast við launa­kröfum, fjár­laga­halla og sveiflum í sjáv­ar­út­vegi með auknu pen­inga­magni.

Hann telur að þessi vinnu­brögð hafi ekki horfið að fullu og varar við því að fleiri seðla­bankar geti lent í svip­uðum aðstæðum vegna póli­tísks þrýst­ings.

Miklir fjár­laga­hallar og kröfur stjórn­mála­manna um að hafa áhrif á vexti geti grafið undan sjálf­stæði seðla­banka. Láti seðla­bank­arnir undan þrýst­ingnum og auki pen­inga­magn til að mæta útgjöldum rík­is­ins geti aðhald gegn verð­bólgu veikst.

Danska krónan kostaði áður 1,22 íslenskar krónur

Christensen bendir að lokum á hversu mikið íslenska krónan hefur veikst gagn­vart þeirri dönsku.

Þegar Lands­banki Íslands tók við hlut­verki seðla­banka árið 1927 kost­aði ein dönsk króna 1,22 íslenskar krónur. Í dag sam­svari það um 1.800 gömlum íslenskum krónum, en tveimur núver­andi krónum var skipt út fyrir hverjar 100 gamlar árið 1981.

Að mati Christensens sýni þró­unin hversu illa íslenska pen­inga­kerfið hafi staðið sig í að við­halda verð­gildi gjald­mið­ils­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...
2
Slúður

Leyni­fé­lag Guðlaugs

Mis­mun­andi er hve sam­visku­samir alþing­is­menn eru við að skrá hags­muni sína eins og vera ber. Morg­un­blaðið er á eftir Kristrúnu Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra vegna hluta­fé­lags­ins Munn­bit­ans þar sem eig­in­maður hennar átti 10 pró­senta hlut. Félagið var í hags­muna­skrá Kristrúnar þar til það fór í þrot. Mogginn hefur aftur á móti ekk­ert gert með þá stað­reynd að Ágústa Johnson, eig­in­kona Guðlaugs Þórs...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Rabbíni ferð­ast um Vest­ur­bakk­ann til að kynna sér ofbeldið

Peningar

Peningar

„Þetta er nú meiri vikan“

Eftir innsiglun tveggja veitingastaða að beiðni Skattsins tekur Sigmar Vilhjálmsson fram að lokun Minigarðsins tengist þeim málum ekki.
  • Peningar

    Tveir þekktir skyndi­bita­staðir inn­sigl­aðir að beiðni Skatts­ins

  • Peningar

    Segir hluta­fjár­út­boð Bláa lóns­ins ótíma­bært vegna eldsum­brota

  • Peningar

    Fyr­ir­tæki sem eig­in­maður Kristrúnar á hlut í orðið gjald­þrota

  • Peningar

    Átta félög gjald­þrota og fað­ir­inn gæti fengið atvinnu­rekstr­ar­bann

  • Peningar

    Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu