Minnst þrjár íslenskar vefsíður sem lýsa yfir stuðningi við málstað Palestínumanna voru eyðilagðar í umfangsmikilli netárás á íslenska hýsingarfyrirtækið 1984. Þar á meðal er vefsíða Félagsins Ísland-Palestínu, sem gæti verið ónýt að sögn formanns félagsins.
Árásin var gerð í síðustu viku og varð fyrirtækið til þess að stöðva alla þjónustu sína. Vísbendingar benda til þess að sérstaklega hafi verið ráðist gegn vefsíðum sem tengjast stuðningi við Palestínu.
Formaður Félagsins Ísland-Palestínu segir í samtali við RÚV, árásina vera árás á tjáningarfrelsið. Vefsíða félagsins liggur nú niðri og óvíst er hvort hægt verði að endurheimta hana.
Ekki liggur fyrir hverjir standa að baki árásinni. Rannsókn á málinu stendur yfir og unnið er að því að endurheimta kerfi og þjónustu 1984.
Í fyrri tilkynningu fyrirtækisins kom fram að starfsmenn þess, ásamt sérfræðingum í netöryggi, ynnu að því að tryggja kerfin áður en þjónusta yrði opnuð á ný.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir