Atli Þór Fanndal Guðlaugsson, verkefnastjóri á skrifstofu rektors við Háskólann á Bifröst gagnrýnir Viðreisn harðlega í færslu á Facebook í kjölfar nýrrar skoðanakönnunar Maskínu, þar sem fylgi flokksins mælist 9,2 prósent á meðan Miðflokkurinn bætir við sig fylgi. Hann segir Miðflokkinn að mörgu leyti heiðarlegri kost en Viðreisn, þrátt fyrir að hann telji stefnu Miðflokksins ekki lausn á efnahagsvanda.
Í færslu sinni vísar Atli Þór til fréttar Vísis um nýjustu niðurstöður könnunarinnar. Þar mælist Miðflokkurinn með 15,1 prósents fylgi og hefur bætt við sig fylgi, en Viðreisn tapar fylgi.
„Gott mál! Af tvennu illu er skárra að böðullinn sé ekki í felulitum frjálslyndis,“ skrifar Atli Þór.
Hann segir Viðreisn vera mannfjandsamlegan flokk og sakar hann um að koma illa fram við fólk sem flokkurinn telur sér óæðra. Þá segir hann flokkinn ætlast til þess að þeir sem verði fyrir slíkri framkomu þakki honum fyrir það sem hann kallar ábyrgt verk.
Atli Þór segir jafnframt að Miðflokkurinn sé „hreinlegri“ kostur en Viðreisn.
„Það er ekki efnahagsstefna að kenna útlendingum um allt. Það er barnalegur flótti frá eigin óöryggi,“ skrifar hann.
Að lokum beinir hann spjótum sínum að stöðu Viðreisnar og segir að allt sem flokkurinn eigi að sjá um sé í rugli.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



























Athugasemdir