Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Nikulási Snorrasyni, 72 ára, en ekkert hefur spurst til hans síðan þriðjudaginn 10. nóvember síðastliðinn.
Nikulás er rúmir 170 sentímetrar á hæð og þéttvaxinn. Þegar hann fór að heiman var hann klæddur í grænan, þunnan sumarjakka, gallabuxur og strigaskó. Hann var með bláan bakpoka.

Lögregla telur líklegt að Nikulás haldi til í Reykjavík, einhvers staðar í Hvalfirði eða á Akranesi.
Þeir sem hafa upplýsingar um ferðir Nikulásar undanfarna daga eða vita hvar hann gæti verið niðurkominn eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 112 eða senda tölvupóst á netfangið [email protected].
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir