Leikarinn Björgvin Franz Gíslason fagnar í dag eins árs sambandsafmæli með kærustu sinni, Bryndísi Guðjónsdóttur, og fór ekki leynt með ást sína í einlægri færslu á Facebook.
Björgvin, sem nú leikur í Þegar Trölli stal jólunum í Borgarleikhúsinu um þessar mundir, segir að hann hafi kolfallið fyrir Bryndísi fyrir nákvæmlega ári síðan á göngum Borgarleikhússins þar sem hún var við æfingar á óperunni La Bohème. Hann rifjar upp að hún hafi verið klædd eins og hefðardama en hann sjálfur í búningi Elsu Lund.
„Jæja hér kemur væmnistatusinn sem allir hafa beðið eftir Það er nàkvæmlega ár síðan að ég kolféll fyrir þessari konu á göngum Borgarleikhússins þegar hún var að æfa La Boheme klædd eins og hefðardama (gullfalleg skvísa by the way) og ég klæddur eins og Elsa Lund (ekki eins falleg skvísa) en með hina fullkomnu sokkabuxnaleggi (sem mér skilst að hún hafi kolfallið fyrir).“
Björgvin segir Bryndísi hafa fyllt líf sitt af gleði, húmor og kærleika. Hún hafi hjálpað honum að vaxa og þroskast og sé ávallt með hugann við að gleðja aðra og létta þeim lífið.
Hann hrósar henni einnig fyrir umhyggju hennar gagnvart fjölskyldu sinni og segir hana jafnvel sinna henni betur en hann sjálfur. Þá hafi hann jafnframt fengið að kynnast yndislegri fjölskyldu hennar sem hafi tekið honum opnum örmum.
Að lokum segist Björgvin vona að þetta sé aðeins eitt af mörgum árum sem þau eigi saman.
„Vonandi er þetta bara eitt af mörgum árum sem við eigum framundan því lífið er svo MIKLU betra með þér,“ skrifar hann.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir