Lögreglan í Lundúnum fjarlægði mann af mótmælum háskólanema, að því er virðist vegna þess að lögreglumenn mislásu áletrun á bol hans. Á bolnum stóð „Palletsign Acton“, en lögreglan virðist hafa lesið „Palestine Action“.
Atvikið átti sér stað í tengslum við mótmæli og hefur vakið athygli í ljósi harðra aðgerða breskra stjórnvalda gegn samtökunum Palestine Action.
Samtökin beina aðgerðum sínum meðal annars gegn fyrirtækjum sem selja Ísrael vopn og hergögn, þar á meðal vopnaframleiðandanum Elbit Systems.
Palestine Action var bannað samkvæmt breskum lögum um hryðjuverk í júlí 2025, eftir mikinn þrýsting frá Elbit Systems og samtökum sem styðja Ísrael.
Bannið hefur verið gagnrýnt og lögmæti þess dregið í efa með vísan til tjáningarfrelsis. Málið er nú til meðferðar hjá hæstarétti Bretlands.
Í myndbandi af handtökunni, má sjá fjölmargar lögreglumenn leiða manninn á brott en hann var síðan handjárnaður síðar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir