Stjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta hefur birt þrjú ný myndskeið sem sýna óþekkt fyrirbæri á lofti, svokölluð UFO-fyrirbæri eða FFH á íslensku. Myndskeiðin voru tekin upp af bandaríska hernum í Mið-Austurlöndum á árunum 2020, 2023 og 2026.
Þetta er áttunda birtingin í röð skjalaafhendinga sem hófst 8. maí síðastliðinn, eftir að Trump fyrirskipaði að opinber gögn um geimverur og óþekkt fljúgandi fyrirbæri yrðu gerð aðgengileg almenningi.
Myndskeiðin voru birt af varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna, sem ríkisstjórn Trump kallar stríðsráðuneytið, þótt þingið hafi ekki formlega samþykkt nafnbreytinguna.
Pete Hegseth varnarmálaráðherra sagði í yfirlýsingu að ráðuneytið ynni náið með forsetanum að því að auka gagnsæi um þekkingu stjórnvalda á óþekktum fyrirbærum.
„Þessi gögn hafa lengi verið falin á bak við trúnaðarmerkingar og ýtt undir réttmætar vangaveltur. Nú er kominn tími til að bandaríska þjóðin fái að sjá þau sjálf,“ sagði Hegseth.
Þetta sýna nýju myndskeiðin
Elsta myndskeiðið var tekið árið 2020 og er 20 sekúndna langt. Það virðist hafa verið tekið nálægt sjávarmáli eða rétt fyrir ofan það. Þar sést útlína skips sem minnir greinilega á flugmóðurskip. Lítill hlutur virðist fljúga fram hjá skipinu og síðan áfram upp í loftið. Hlutar myndarinnar hafa verið huldir með svörtum reitum.
Annað myndskeiðið var tekið árið 2023 og er 13 sekúndna langt. Þar sést lítill hlutur úr lofti sem virðist breyta um stefnu nokkrum sinnum á mjög skömmum tíma.
Þriðja myndskeiðið er lengst, 54 sekúndur, og var tekið á þessu ári. Þar virðast nokkrir litlir hlutir hreyfast saman í hópi. Myndin er einnig tekin úr lofti.
Varnarmálaráðuneytið tekur fram að um óleyst mál sé að ræða. Stjórnvöld geti ekki staðfest með afgerandi hætti hvers eðlis fyrirbærin séu, meðal annars vegna þess að upplýsingar og gögn séu ekki nægilega ítarleg.
Ráðuneytið segist jafnframt fagna því að sérfræðingar utan stjórnkerfisins taki þátt í að greina gögnin.
Trump fyrirskipaði birtingu gagnanna
Í febrúar fyrirskipaði Trump varnarmálaráðuneytinu og öðrum ríkisstofnunum að safna saman og birta gögn stjórnvalda sem tengjast geimverum, lífi utan jarðar og óþekktum fljúgandi fyrirbærum.
Í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social sagði forsetinn að mikill áhugi almennings á málefninu réttlætti að gögnin yrðu gerð opinber.
Í október var einnig birtur annar hópur skjala þar sem meðal annars voru teikningar og frásagnir vitna af meintum kynnum við óþekktar verur í Utah árið 2010. Verurnar voru sagðar svokallaðir Skinwalkers, sem koma fyrir í þjóðsögum Navajo-þjóðarinnar og eru sagðar geta tekið á sig mynd ýmissa dýra.
Frásagnirnar leiddu til rannsóknar sérstaks starfshóps í Utah og fóru sérfræðingar frá fyrirtækinu Bigelow Aerospace Advanced Space Studies á vettvang í tvígang árið 2010.
Þingmenn og vísindamenn ósammála um merkingu gagnanna
Tim Burchett, þingmaður Repúblikanaflokksins, hefur lengi kallað eftir því að stjórnvöld birti meiri upplýsingar um UFO-fyrirbæri. Í apríl sagðist hann hafa fengið kynningu á „ansi ótrúlegum“ upplýsingum en jafnframt vera sannfærður um að almenningur gæti tekist á við sannleikann.
Burchett hefur áður haldið því fram að bandarísk stjórnvöld hafi í áratugi leynt upplýsingum um að þau hafi komist yfir tækni frá geimverum og jafnvel verur utan jarðar. Þessar fullyrðingar hafa þó verið dregnar mjög í efa.
Árið 2023 hélt eftirlitsnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings yfirheyrslur um UFO-fyrirbæri. Þar báru vitni því að alríkisstjórnin hefði haft vitneskju um starfsemi geimvera allt frá fjórða áratug síðustu aldar.
Sumir vísindamenn hafa gagnrýnt slíkar fullyrðingar. Eðlisfræðingurinn Brian Cox sagði meðal annars að hann hefði séð fólk halda fram stórkostlegum hlutum án þess að leggja fram gögn sem styddu jafn stórkostlegar niðurstöður.
Nýju myndskeiðin hafa því ekki enn leyst ráðgátuna um eðli fyrirbæranna. Bandarísk stjórnvöld segja þau óútskýrð og óska eftir frekari greiningu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir