Leikarinn Macaulay Culkin snýr aftur í kvikmyndaseríuna sívinsælu Home Alone eftir 34 ára hlé. Hann mun aftur fara með hlutverk Kevin McCallister, nú sem fullorðinn maður, í nýrri framhaldsmynd sem er í þróun hjá Disney og 20th Century Studios.
Seth Rogen og handritsfélagi hans, Evan Goldberg, hafa bæst í hópinn við að skrifa handritið og framleiða myndina. Verkefnið byggist á hugmynd sem Culkin lagði sjálfur fyrir Disney.
Culkin lék Kevin fyrst í upprunalegu myndinni Home Alone árið 1990 og sneri aftur í framhaldsmyndinni Home Alone 2: Lost in New York árið 1992. Hann tók hins vegar ekki þátt í síðari myndum seríunnar sem flestir vilja gleyma, þar á meðal Home Alone 3 frá 1997, Home Alone 4 frá 2002, Home Alone: The Holiday Heist frá 2012 og Home Sweet Home Alone frá 2021.
Þótt lítið hafi verið gefið upp um söguþráð nýju myndarinnar hefur Culkin áður rætt hvernig hann sæi fyrir sér að snúa aftur í hlutverkið.
„Mér líst vel á þá hugmynd að Kevin sé orðinn eldri, kannski ekkill eða eitthvað slíkt. Hann er að ala upp barn og þau ná ekki alveg saman. Hann vinnur allan tímann,“ sagði hinn 46 ára leikari á sýningu í tilefni 35 ára afmælis fyrstu myndarinnar í fyrra, samkvæmt The Hollywood Reporter.
Hann lýsti einnig tveimur mögulegum leiðum fyrir framhaldið. Annars vegar gæti Kevin óvart skilið barnið sitt eftir, líkt og fjölskylda hans gerði við hann í upprunalegu myndinni. Hins vegar gæti hann gert það viljandi og hugsað með sér að reynslan hafi gert hann að þeim manni sem hann er í dag.
Í síðari útfærslunni myndi barn Kevins læsa hann úti úr húsinu og koma fyrir gildrum til að halda honum frá því.
„Ég held að ég sjái gildrurnar fyrir, enda er ég sérfræðingurinn,“ sagði Culkin.
Hann bætti við að það gæti einnig útskýrt hvers vegna Kevin hringdi ekki í lögregluna eða lásasmið. Hann skammaðist sín einfaldlega fyrir að barnið hans hefði betur í átökunum.
Culkin sagði að húsið gæti jafnframt verið tákn fyrir tilraun Kevins til að komast aftur inn í hjarta barnsins síns.
Ekki hefur enn verið tilkynnt hver muni leikstýra myndinni eða hvaða aðrir leikarar muni taka þátt í henni en báðir leikararnir sem léku forelda Kevins í fyrstu tveimur myndunum, þau John Heard og Catherine O´Hara eru látin.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir