Við Hólsveg 7 á Eskifirði stendur Efri Hóll, hlýlegt einbýlishús sem reist var árið 1916. Húsið er nú til sölu á 49,9 milljónir króna. Því hefur verið vel við haldið í gegnum tíðina og það endurnýjað að talsverðu leyti, að því er fram kemur í sölulýsingu.
Á aðalhæðinni eru tvær samliggjandi stofur og úr eldhúsinu má njóta útsýnisins yfir morgunkaffinu. Á hæðinni eru einnig gangur og forstofa en þrjú svefnherbergi og baðherbergi eru á efstu hæð. Við innganginn er stór sólpallur þar sem skjólveggir veita afdrep á sólríkum dögum.
Í kjallaranum hafa verið útbúnar vinnustofur þar sem rúm er fyrir ýmiss konar handverk. Þar er líka þvottaaðstaða. Húsið er tengt hitaveitu og stendur á 380 fermetra eignarlóð. Við húsið er skúr sem nýta má til vinnu eða geymslu.



Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir