Salka Sól Eyfeld, leik- og söngkona, kom fram á þremur sýningum í Hörpu eftir að hafa vaknað með gubbupest um nóttina. Hún segist hafa kastað upp á milli sýninga en náð að ljúka þeim öllum.
Salka greindi frá þessu á Facebook. Þar sagði hún að hún hefði ekkert sofið um nóttina áður en hún mætti í Hörpu. Hún hafi sofnað þegar heim var komið og liðið vel þegar hún skrifaði færsluna.
„Hef aldrei lent í þessu á mínum ferli en það hafðist,“ skrifaði Salka.
Áhorfendur tóku ekki eftir veikindunum
Fjölmargir sendu Sölku batakveðjur í athugasemdum við færsluna. Helena Kristinsdóttir hrósaði frammistöðu hennar og söngrödd og sagðist ekki hafa grunað að hún væri veik. Haukur Henriksen tók í sama streng og bætti við í léttum dúr að hann hefði þó tekið eftir því ef hún hefði kastað upp á sviðinu.
Guðleif Hallgrímsdóttir þakkaði fyrir sýninguna og sagðist hafa mætt með 20 mánaða barnabarn sitt, sem fylgdist hugfangið með á sinni fyrstu leiksýningu. Guðleif sagðist sjálf liggja veik og eiga erfitt með að ímynda sér að mæta til vinnu við slíkar aðstæður.
Fram undan eru sýningar í Hofi á Akureyri 4. og 5. desember hjá söngkonunni. Salka segist hlakka til að sýna þar á ný og snúa svo aftur í Hörpu 20. desember með Skoppu og Skrítlu.
Það er nóg að gera hjá Sölku á aðventunni líkt og í fyrra þegar hún gaf út plötuna Í takt við jólin með Stórsveit Reykjavíkur.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir