Lögregla stöðvaði þrjá ökumenn vegna aksturs undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því í gærkvöldi og í nótt. Alls var 41 mál skráð frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun. Fjórir gistu í fangageymslu þegar dagbókin var rituð.
Tveir ökumannanna reyndust undir áhrifum áfengis og einn undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Fjórði ökumaðurinn var stöðvaður og reyndist án gildra ökuréttinda. Málið var afgreitt á vettvangi. Lögregla fjarlægði einnig skráningarmerki af tveimur ökutækjum vegna vanrækslu á tryggingum.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu við að vísa einstaklingi í annarlegu ástandi út úr verslun. Viðkomandi var farinn þegar lögregla kom á staðinn.
Lögreglu bárust jafnframt tvær tilkynningar um grunsamlegar mannaferðir. Í báðum tilvikum var engan að sjá þegar lögregla kom á vettvang.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir