Matvælastofnun varar neytendur við neyslu á öllum framleiðslulotum af jólasmákökudeigi fyrir Þristakökur frá Evu Laufeyju, sem Myllan framleiðir. Ástæðan er að málmloka fannst í einni vöru.
Myllan hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar.
Innköllunin nær til allra lota af vörunni, sem er í 500 gramma umbúðum. Strikamerki hennar er 5690568019863.
Varan hefur verið seld í verslunum Hagkaupa og Bónuss auk Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðárkróki.
Neytendur sem eiga vöruna eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni. Einnig er hægt að skila henni í versluninni þar sem hún var keypt eða til Myllunnar að Blikastaðavegi 2-8 í Reykjavík.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir