Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag íslenskan karlmann í tólf mánaða fangelsi fyrir skjalafals og fyrir að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna þrátt fyrir ævilanga sviptingu ökuréttar. Maðurinn sendi aðstoðarsaksóknara falsað læknisvottorð í því skyni að komast hjá saksókn vegna akstursins.
Lögregla stöðvaði manninn á Kringlumýrarbraut við Miklubraut í Reykjavík sunnudaginn 20. júlí 2025. Í blóðsýni sem tekið var úr honum mældust búprenorfín, metýlfenídat og norbúprenorfín.
Hinn 6. október sama ár sendi maðurinn aðstoðarsaksóknara hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu vottorð um lyfjameðferð sína. Samkvæmt dómnum hafði lyfinu Ritalin Uno, 40 milligrömmum, verið bætt inn á vottorðið án heimildar.
Maðurinn játaði bæði brotin skýlaust og taldi dómurinn játninguna manninum til málsbóta.
Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010. Þetta er í sjöunda sinn sem hann hlýtur dóm fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og í áttunda sinn fyrir að aka sviptur ökurétti. Dómurinn áréttaði ævilanga sviptingu ökuréttar hans.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


























Athugasemdir