Atli Bollason tónlistarmaður, sem hefur lengi verið félagi í Samfylkingunni, segir nýlegar breytingar á lögum og reglugerðum sem varða innflytjendur utan Evrópska efnahagssvæðisins ganga gegn grundvallargildum jafnaðarmanna. Í aðsendri grein sem birtist í morgun á Vísi gagnrýnir hann meðal annars viðmið um framfærslu og segir breytingarnar geta sundrað fjölskyldum.
Atli kveðst oft hafa kosið Samfylkinguna og segir nokkra úr sinni nánustu fjölskyldu hafa gegnt trúnaðarstörfum fyrir flokkinn. Hann hafi talið sig eiga samleið með flokknum vegna áherslu hans á frelsi, jafnrétti og bræðralag. Nú spyr hann hvernig stefna ríkisstjórnarinnar í málefnum innflytjenda samrýmist þeim gildum eða því markmiði að bæta hag almennings.
„Hvernig gagnast það íslenskum almenningi að fara á mis við framlag listamanna, vísindamanna, verkafólks, heilbrigðisstarfsfólks, mæðra og feðra í hundraðatali?“ spyr Atli. Hann gagnrýnir jafnframt það sem hann segir vera verulega skerðingu á aðgengi innflytjenda að íslenskunámi.
Segir viðmiðin gera lítið úr framlagi foreldra
Atli segir breytingarnar geta haft afleiðingar fyrir heilbrigðisþjónustu, skóla, listalíf og ferðaþjónustu. Hann telur að kærum muni fjölga þegar fólk láti reyna á undanþágur og bendir á óvissuna sem fjölskyldur búi við þegar framtíðaráform þeirra séu í húfi.
Að mati Atla gera framfærsluviðmiðin lítið úr vinnuframlagi láglaunafólks og foreldra. Hann segir tugþúsundir Íslendinga sjálfa eiga erfitt með að standast sömu viðmið og beinir í lok greinarinnar áskorun til þingmanna.
„Ég biðla til þeirra þingmanna sem kalla sig jafnaðarmenn að beita sér gegn þessum breytingum ellegar kenna sig í framtíðinni við einhverja aðra og grimmúðlegri stjórnmálastefnu.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir