Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir varði samn­ing ráðu­neyt­is­ins um ráð­gjöf vegna þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu

Deilt um samning
Deilt um samn­ing Ólafur spurði utan­rík­is­ráð­herra um samn­ing ráðu­neyt­is­ins við Nebraska og Stefán Einar fjall­aði síðar um svör hennar. Mynd: Samsett / Brynhildur Jensdóttir / Víkingur / BHJ

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra sagði að verk­efni Heiðu Krist­ínar Helga­dóttur hefðu verið skýrt skil­greind þegar Ólafur Adolfs­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, spurði á Alþingi í dag með hvaða heim­ild ráðu­neytið hefði samið um póli­tíska ráð­gjöf. Ráðherra gagn­rýndi jafn­framt umfjöllun Morg­un­blaðs­ins um málið.

Tilefni orða­skipt­anna í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum var samn­ingur utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við Nebraska ehf. um ráð­gjöf Heiðu Krist­ínar vegna þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar 29. ágúst um áfram­hald aðild­ar­við­ræðna Íslands við Evr­ópu­sam­bandið.

Spurði um greiðslur og munnlegt samkomulag

Ólafur sagði að sam­kvæmt upp­haf­lega samn­ingnum hefði ráðu­neytið átt að greiða 1.750.000 krónur á mán­uði fyrir 25 stunda vinnu á viku. Síðar hefði verið samið munn­lega um greiðslu á 3,5 millj­ónum króna. Hann spurði hvernig greiðsl­urnar hefðu verið ákvarð­aðar og hvaða heim­ild ráð­herra hefði haft til að hækka þær með munn­legu sam­komu­lagi.

„Á hvaða laga­grund­velli er ráð­herra heim­ilt að ráða sér verk­taka til að sinna póli­tískum störfum?“ spurði Ólafur.

Þor­gerður Katrín svar­aði því til að tíma­bundni samn­ing­ur­inn við Nebraska hefði verið undir við­mið­un­ar­mörkum laga um opin­ber inn­kaup. Ákvæði um fjár­hags­legt hæfi hefðu því ekki átt við. Hún sagði kostnað rík­is­ins ekki hafa auk­ist enda hefði hún ekki ráðið annan aðstoð­ar­mann á tíma­bil­inu. Munnlega sam­komu­lagið hefði verið gert eftir þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una þar sem ljúka þurfti verk­efnum sem henni tengd­ust.

Ráðherra vék einnig að frétta­flutn­ingi Morg­un­blaðs­ins. „Það sem hefur verið sagt og m.a. sett fram í Morg­un­blað­inu og komið fram þar er ekki rétt, þar er hallað réttu máli.“

Óskaði eftir tilvísun í lagaákvæði

Ólafur sagði svör ráð­herra ekki sann­fær­andi. „Það að ráð­herra hafi einn aðstoð­ar­mann en ekki tvo veitir ráð­herra ekki heim­ild til að ráð­stafa opin­beru fé í sína per­sónu­legu póli­tísku bar­áttu eftir eigin henti­semi.“ Hann óskaði á ný eftir því að ráð­herra til­greindi þau laga­á­kvæði sem hún byggði ákvarð­anir sínar á.

Í síð­ara svari sínu vís­aði Þor­gerður Katrín því á bug að verk­efni Heiðu Krist­ínar hefðu verið óskil­greind. „Af hverju kemur hv. þing­maður hingað upp og segir að svo sé þegar verk­efnin voru mjög skil­greind í samn­ingnum?“ spurði hún. Ráðherra sagði að með þessu fyr­ir­komu­lagi hefði rík­is­sjóður meðal ann­ars kom­ist hjá greiðslu bið­launa. Hún gagn­rýndi jafn­framt mál­flutn­ing Ólafs. „Mér finnst miður að það sé verið að vega að mann­eskju með hálf­kveðnum vísum, með dylgjum.“

Stefán Einar vitnar í Heiðu Kristínu

Stefán Einar Stef­áns­son gerði orð ráð­herra að umtals­efni í færslu á Facebook. „Hún heldur því fram að það séu dylgjur að Heiða Kristín Helga­dóttir hafi verið ráðin án starfs­lýs­ingar. Vandinn er bara sá að Heiða Kristín sagði það sjálf,“ skrif­aði hann.

Stefán Einar vís­aði til við­tals RÚV við Heiðu Kristínu í kosn­inga­vöku Já til að sjá aðfara­nótt 30. ágúst. Í færsl­unni hafði hann eftir henni þessi orð. „Þetta er alltaf smá óvissu­ferð þegar maður leggur af stað í kosn­inga­bar­áttu og mín starfs­lýs­ing var engin þannig að þetta var bara svo­lítið spurn­ing um að djöfl­ast í alls konar.“

Hann vitn­aði jafn­framt í ákvæði samn­ings­ins við Nebraska þar sem verk­efn­inu var lýst þannig. „HKH tekur að sér stefnu­mót­andi ráð­gjöf og verk­efni fyrir utan­rík­is­ráð­herra vegna þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um áfram­hald við­ræðna Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu.“

Stefán Einar taldi enn ósvarað hvers vegna ráðu­neytið hefði samið við Nebraska, sem hann sagði hafa verið með nei­kvætt eigið fé, og spurði hvers vegna Heiða Kristín hefði ekki verið ráðin tíma­bundið sem aðstoð­ar­maður ráð­herra. Þá kall­aði hann eftir skýr­ingum á því hvernig farið hefði verið með skatt­skuld sem hann sagði Heiðu Kristínu hafa átt við rík­is­sjóð. Að sögn Stefáns Einars námu greiðslur ráðu­neyt­is­ins vegna ráð­gjaf­ar­innar nærri 18 millj­ónum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Guðrún Hafsteinsdóttir gagnrýndi bið ríkisstjórnarinnar með hagræðingu. Kristrún Frostadóttir segir tillögur væntanlegar á næstu dögum.
Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Innlent

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Innlent

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Pólitík

„Staðan á vissum tímum sól­ar­hrings­ins orðin nán­ast óbæri­leg“

Umferðartafir á Reykjanesbraut í Hafnarfirði eru miklar á álagstímum, að sögn Árna Rúnars Þorvaldssonar, sem kallar eftir úrbótum.
  • Aðeins þrír róðrar áður en hjónin riftu kaup­unum

  • „Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

  • Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

  • Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda