Öll teppi voru búin á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri seint á sunnudagskvöldi, að sögn Ingibjargar Isaksen, þingmanns Framsóknarflokksins. Í umræðum um störf þingsins á Alþingi í dag lýsti hún reynslu sinni af því að dvelja með nánum aðstandanda á sjúkrahúsinu og kallaði eftir því að ríkisstjórnin tryggði heilbrigðisstofnunum fjármagn í samræmi við verkefni þeirra.
Ingibjörg sagði að oft þyrfti að leita lengi að teppum á deildinni í lok dags. Einnig væri skortur á hitapokum sem notaðir væru til að lina verki sjúklinga. Hún hrósaði starfsfólkinu fyrir umhyggju og fagmennsku og sagði þjónustuna hafa verið framúrskarandi við krefjandi aðstæður.
„Við getum ekki endalaust treyst á útsjónarsemi, fórnfýsi og fagmennsku heilbrigðisstarfsfólks til að bæta upp skort á fjármagni.“
Ingibjörg sagði sjúkrahúsið rekið með verulegum halla. Þrátt fyrir það væru gerðar frekari kröfur um hagræðingu svo ríkisstjórnin gæti náð markmiði sínu um hallalausan ríkisrekstur. Hún kvaðst fylgjandi ábyrgum ríkisfjármálum en sagði þá ábyrgð einnig felast í því að tryggja fjármögnun grunnþjónustunnar.
„Hvenær verður hagræðing að skerðingu á þjónustu og hvenær erum við farin að ganga á öryggi sjúklinga og starfsfólks?“ spurði Ingibjörg.
Hún sagði fleiri heilbrigðisstofnanir glíma við sambærilegan vanda. Við mat á árangri í ríkisfjármálum þyrfti jafnframt að líta til gæða þeirrar þjónustu sem almenningur fengi.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



























Athugasemdir