Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervigreind

Þing­maðurinn segir þróun gervi­greindar hafa verið hraðari á síðustu vikum en djörfustu spár gerðu ráð fyrir.

Eftirlit með líkönum
Eftirlit með lík­önum Snorri Másson vill ræða hvort setja eigi öfl­ug­ustu gervi­greind­ar­lík­ön­unum skorður og hvernig stjórn­völd fylgi eftir afstöðu sinni til eft­ir­lits með þeim. Mynd: Víkingur

Miðflokkurinn hefur óskað eftir sérstakri umræðu á Alþingi um gervi­greind. Snorri Másson, þingmaður flokksins, greindi frá þessu undir liðnum störf þingsins í dag. Hann sagði tilefni til að ræða hvort setja ætti öflugustu gervi­greindar­líkönunum skorður og hvernig íslensk stjórn­völd hygðust fylgja eftir afstöðu sinni til eftirlits með þeim.

Snorri sagði þróun gervi­greindar hafa verið hraðari á síðustu vikum en djörfustu spár hefðu gert ráð fyrir. Tæknin hefði í för með sér tækifæri fyrir Íslendinga en að hans mati þyrfti jafnframt að ræða hættuna á því að menn misstu stjórn á henni.

„Líklega er tímabært að eiga dýpri umræðu um þær grundvallar­breytingar sem eru í þann mund að verða á mannlegu samfélagi og hvort við Íslendingar séum ekki þeirrar skoðunar að svona máttug tækni þurfi t.d. að sæta ströngu eftirliti eða takmörkunum,“ sagði Snorri.

Hann sagði stjórn­völd leggja áherslu á að auðvelda fólki á Íslandi að nota tæknina. Þingmenn gætu líka rætt hvort Ísland ætti að taka þátt í alþjóð­legu ákalli um eftirlit með öflugustu gervi­greindar­líkönunum.

„Þá gefst okkur færi til að ræða þátttöku Íslands í alþjóð­legu ákalli um að öflugustu líkönin verði áfram undir stjórn manna og sæti óháðu mati,“ sagði Snorri. Hann kvaðst vilja ræða hvað stjórn­völd legðu í þá afstöðu, hvernig þau fylgdu henni eftir og hvaða hlutverk Ísland hygðist taka sér á þessu sviði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Guðrún Hafsteinsdóttir gagnrýndi bið ríkisstjórnarinnar með hagræðingu. Kristrún Frostadóttir segir tillögur væntanlegar á næstu dögum.
  • „Staðan á vissum tímum sólar­hringsins orðin nánast óbærileg“

  • Aðeins þrír róðrar áður en hjónin riftu kaupunum

  • „Af tvennu illu er skárra að böðullinn sé ekki í felulitum frjáls­lyndis“

  • Segir Ísland útiloka einmitt þá innflytj­endur sem landið þarf á að halda

  • Segir trygginga­félögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum