Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Slysið varð aðfara­nótt sunnudags á blautum vegi við Flúðir.

Flúðir
Flúðir Árekst­ur­inn varð við brúna yfir Litlu Laxá á Flúðum. Maðurinn hlaut alvar­lega áverka á hægri fót­legg. Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Héraðs­dómur Suður­lands hefur dæmt Perlu Líf Kjartans­dóttur í 30 daga skilorðs­bundið fangelsi fyrir líkams­meiðingar af gáleysi og brot á umferðar­lögum. Hún ók á gangandi mann við brúna yfir Litlu Laxá á Flúðum og yfirgaf slys­staðinn án þess að veita honum aðstoð eða tilkynna lögreglu um slysið. Maðurinn hlaut alvarlega áverka á hægri fótlegg.

Slysið varð um klukkan hálfþrjú aðfara­nótt sunnu­dagsins 14. júlí 2024 á Skeiða- og Hruna­mannavegi. Maðurinn var á leið heim úr brúðkaupi ásamt tveimur vinum sínum. Þau gengu hlið við hlið, vinirnir á gangstéttinni og maðurinn á akbrautinni rétt við gangstéttar­kantinn.

Einn vinur varð var við bifreiðina nálgast aftan frá og kallaði til mannsins að færa sig upp á gangstétt. Samkvæmt niður­stöðu dómsins náði hann að líta við áður en bifreiðin lenti á honum. Við höggið kastaðist hann að gangstéttinni.

Bað hana að bíða eftir lögreglu

Perla Líf ók yfir brúna, stöðvaði bifreiðina og gekk til baka þar sem vinir mannsins hlúðu að honum. Annað vitnið hringdi í Neyðar­línuna og hitt batt náttkjól um læri mannsins til að stöðva blæðingu. Vinur hans bar fyrir dómi að hann hefði beðið Perlu Líf að bíða eftir lögreglu. Hún sagðist þurfa að flýta sér og gaf upp nafn sitt og kennitölu að beiðni hans áður en hún ók á brott.

Perla Líf neitaði sök. Hún sagðist hafa reynt að hemla og beygja til vinstri en að atburða­rásin hefði verið mjög hröð. Hún taldi sig hafa ekið á mest 40 kílómetra hraða á klukku­stund. Fyrir dómi sagðist hún hafa verið stressuð, ekki áttað sig á alvarleika meið­slanna og ekki vitað hvernig hún ætti að bregðast við.

Hlaut alvarlega áverka á hné

Maðurinn hlaut yfirborðsáverka á hnakka og djúpt sár við hægra hné. Sin í lærvöðva slitnaði og áverki varð á liðpoka hnésins. Hann gekkst undir aðgerð á Land­spítala og sagði fyrir dómi að hann væri með lófastórt ör eftir slysið. Hann kvaðst lítið muna eftir árekstrinum sjálfum.

Dómurinn taldi sannað að Perla Líf hefði ekið án nægrar athygli og að öllum líkindum hraðar en aðstæður leyfðu. Vegurinn var blautur og rökkur var þegar slysið varð. Dómurinn taldi birtuna þó hafa verið næga til að sjá gangandi vegfarendur og komst að þeirri niður­stöðu að maðurinn hefði þegar verið á akbrautinni þegar bifreiðin nálgaðist. Dómurinn taldi jafnframt að Perlu Líf hefði mátt vera ljóst að aðstæður á slysstað væru alvarlegar.

Í dóminum kemur fram að brottför hennar hafi torveldað rannsókn lögreglu. Lögregla gat fyrst rætt við hana og fundið bifreiðina síðar um morguninn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.
Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi