Stjórnvöld ætla að efla viðbúnað og eftirlit Landhelgisgæslu Íslands og embættis ríkislögreglustjóra. Sérstök áhersla verður lögð á að efla eftirlit með drónum og kaupa sérútbúnar bifreiðar til að styrkja viðbragðsgetu sérsveitar ríkislögreglustjóra.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra undirrituðu samninga þess efnis við Landhelgisgæsluna og embætti ríkislögreglustjóra í morgun. Undirritunin fór fram um borð í varðskipinu Þór að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Þorgerður Katrín segir þróun heimsmála kalla á aukinn viðbúnað. „Ráðuneytin eiga nú þegar í nánu og þéttu samstarfi þegar kemur að öryggis- og varnarmálum og það ætlum við nú að styrkja enn frekar,“ segir hún.
Þorbjörg segir öfluga borgarlega innviði gegna lykilhlutverki í vörnum landsins. „Við þurfum að tryggja að þær stofnanir sem bera ábyrgð á viðbúnaði innanlands hafi bæði búnað og getu sem þarf til að mæta nýjum og breyttum áskorunum,“ segir hún.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


























Athugasemdir