Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og fyrrverandi forsætisráðherra, segir fyrirhugaðar skattahækkanir ríkisstjórnarinnar ganga gegn markmiðum hennar um aukna verðmætasköpun. Hann telur að hætta sé á langvarandi stöðnun í íslensku efnahagslífi ef fjárfesting tekur ekki við sér.
Í grein sinni á Vísi segir Bjarni að uppsafnaður hagvöxtur á árunum 2024 til 2026 stefni í að verða um 1,2 prósent. Hann vísar til nýrrar spár Seðlabankans um 1,2 prósenta hagvöxt á næsta ári, sem sé minni vöxtur en bankinn spáði áður. Samkvæmt spánni dragist fjárfesting saman næstu þrjú árin.
„Ef ekki rætist úr gætum við verið að horfa fram á týndan áratug í efnahagsmálum,“ skrifar Bjarni.
Hann segir fjárfestingu hafa átt ríkan þátt í þeim takmarkaða hagvexti sem mælst hefur undanfarin ár. Fjárfesting í nýjum fyrirtækjum og atvinnugreinum sé nauðsynleg til að skapa verðmæti og fjölbreytt atvinnutækifæri.
Bjarni telur ýmsar áherslur atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar til bóta, þar á meðal einföldun regluverks, uppbyggingu innviða og eflingu vísinda og nýsköpunar. Samtök atvinnulífsins hafi þó varað við því að stefnan næði aðeins að hluta til utan um verkefnið ef hún tæki ekki kerfisbundið á skattkerfinu og fyrirkomulagi kjarasamninga.
Meðal þeirra aðgerða sem Bjarni gagnrýnir eru bankaskattur, baðlónaskattur, kílómetragjald, skattar á orkumannvirki og afnám endurgreiðslu vegna vinnu á byggingarstað. Hann segir að horfa þurfi til samanlagðra áhrifa aðgerðanna.
„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn,“ skrifar Bjarni.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir