Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagðist á Alþingi í dag hafa farið að jafnaði um annað hvert ár síðustu tvo áratugi í jarðarför ungs manns sem hann hafði kennt. Hann kallaði eftir því að vanda ungra karla yrði veitt meiri athygli.
„Ég vil ekki mæta í fleiri jarðarfarir ungra manna sem áttu allt lífið fram undan og voru elskaðir af sínum.“ sagði þingmaðurinn.
Jón Pétur sagði sterk tengsl hafa myndast milli sín og piltanna á skólaárunum. Þeir hefðu verið ólíkir og átt sér drauma en síðar mætt erfiðleikum sem þeim þótti erfitt að yfirstíga.
„Þessar stundir í kirkjunni eru alltaf jafn sárar. Fjölskyldur og vinir sitja eftir í sorg með ótal spurningar.“
Þingmaðurinn sagðist lítið hafa orðið var við umfjöllun um alþjóðadag karla 19. nóvember. Hann benti á að drengir stæðu stúlkum að baki í menntun og sjálfsvíg væru meðal helstu dánarorsaka ungra karla. Þá væru karlar í miklum meirihluta þeirra sem létust í vinnuslysum.
Jón Pétur lagði áherslu á að aukin umræða um vanda ungra karla drægi ekkert úr mikilvægi annarra samfélagsmála.
„Við eigum ekki fyrst að veita þessum ungu mönnum athygli þegar við fylgjum þeim til grafar. Gerum miklu betur.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



























Athugasemdir