Herferð Stefáns Einars Stefánssonar, blaðamanns Morgunblaðsins, vegna væntanlegrar Þjóðarhallar hefur vakið nokkra undrun. Eftir útboð hrepptu Íslenskir aðalverktakar verkefnið í samkeppni við Ístak. Eftir það hóf Stefán Einar mikla ritröð þar sem Íslenskum aðalverktökum er fundið flest til foráttu. Meðal annars fjallar Stefán um að eigið fé fyrirtækisins sé neikvætt. Ekkert er sagt um að eigandi ÍAV sé stöndugt svissneskt fyrirtæki. Hermt er að Stefán dæli út spurningum til Reykjavíkurborgar og ríkisins sem beri þess keim að vera samdar af sérfróðum um verktakabransann.
Blaðamaðurinn starfar í skjóli auðkonunnar Guðbjargar Matthíasdóttur og sonar hennar Einars Sigurðssonar sem hann fundar reglulega með. Gárungar segja að Einar, Andrés Magnússon og Stefán Einar myndi skuggastjórn Morgunblaðsins sem gjarnan fundi á veitingastaðnum La Primavera.
Auðkonan á meirihlutann í Morgunblaðinu og rekur mikinn köngulóarvef fyrirtækja sem fær frið fyrir Stefáni og félögum. Víst er talið að skrifin um Íslenska aðalverktaka séu borin fram með velþóknun Guðbjargar og Einars. Spurt er hvaða hagsmunir liggi að baki herferðinni ...
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir