Aðalsteinn Steinþórsson og Eggert Ellertsson voru meðal þriggja skipverja sem létust þegar fiskiskipið Jökull ÞH 299 sökk um 60 sjómílur austur af landinu á miðvikudag. Dóttir Aðalsteins og móðir Eggerts greina frá andláti þeirra í færslum á Facebook.
Agnes Aðalsteinsdóttir minnist föður síns sem eins af sínum stærstu fjársjóðum. „Pabbi minn var hörkutól. Villimaður með stórt hjarta og maður sem lét ekki mikið stoppa sig,“ skrifar hún. Hún segir föður sinn hafa staðið við bakið á sér í einu og öllu, einnig þegar mest reyndi á hana.
„Og ef ég gæti fengið eina mínútu í viðbót með þér myndi ég ekki biðja um neitt annað en að fá að faðma þig, segja þér hversu mikið þú skiptir mig máli og þakka þér fyrir allt sem þú varst mér og börnunum mínum.“
Elín Halla Þórhallsdóttir, móðir Eggerts, segir fjölskylduna syrgja ástkæran son. Hugur fjölskyldunnar sé jafnframt hjá þeim sem misstu ástvini sína í slysinu, öðrum skipverjum og aðstandendum þeirra.
Björgunaraðgerðir á slysstað stóðu í um tvo klukkutíma. Skipverjarnir höfðu verið í köldum sjó í nokkrar klukkustundir þegar aðgerðunum lauk. Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar náði öllum sautján skipverjunum um borð og voru fjórtán þeirra á lífi.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






























Athugasemdir