Þegar Jóhannes Stefánsson steig fram sem uppljóstrari árið 2019 lýsti hann því hvernig hann hefði haft milligöngu um mútugreiðslur fyrir Samherja í Namibíu. Skilaboð sem fundust síðar í tölvu hans varpa nú ljósi á hvaða upplýsingar hann gaf Þorsteini Má Baldvinssyni á meðan hann stýrði starfsemi fyrirtækisins þar í landi.
„Ég hafði ekkert með manninn að gera,“ sagði Þorsteinn um Jóhannes í fyrstu yfirheyrslu sinni hjá héraðssaksóknara sumarið 2020 vegna rannsóknar á meintum mútugreiðslum Samherja í Namibíu. Aðspurður hvort þeir hefðu þó átt einhver samskipti sagði Þorsteinn að svo hefði verið, en „á takmarkaðan hátt“.
Heimildin hefur nú skoðað 1.468 skilaboð þeirra á milli frá 28. mars 2013 til 13. ágúst 2016 og birt ítarlega greiningu á þeim. Þar greindi Jóhannes Þorsteini meðal annars frá drögum að kvótaúthlutun og fundum með ráðherra. Hann leitaði einnig til Þorsteins þegar taka þurfti afstöðu til greiðsluskilmála.
Að sögn Heimildarinnar sýna skilaboðin að mennirnir voru í reglulegu sambandi á þessum árum, þegar Samherji byggði upp starfsemi sína í Namibíu. Heimildin tekur fram að ekki sé að sjá að mútur hafi verið ræddar berum orðum.
Skilaboðin fundust í símaafriti
Tæknimaður lögreglu fann skilaboðin í tölvu sem Jóhannes afhenti héraðssaksóknara í nóvember 2019. Í tölvunni var afrit sem hafði vistast þegar Jóhannes tengdi síma sinn við hana. Samkvæmt Heimildinni vissi hann ekki að skilaboðin hefðu varðveist þar. Miðillinn greindi fyrst frá tilvist þeirra í október 2024 og hefur nú fengið afrit af þeim öllum.
Í myndbandi sem Samherji lét gera eftir að Namibíumálið komst í hámæli sagði Þorsteinn að fyrirtækinu hefðu orðið á mistök við eftirlit með starfseminni. „Mistök Samherja eru að hafa ekki haft betra eftirlit með rekstrinum í Namibíu og þar af leiðandi betri yfirsýn. Og ég vík mér ekkert undan þeirri ábyrgð sem að ég ber í þeim efnum,“ sagði hann.
Að mati Heimildarinnar styðja skilaboðin fyrri frásögn Jóhannesar og sýna að Þorsteinn fékk ítarlegri upplýsingar um reksturinn í Namibíu en ráða mátti af opinberum ummælum hans.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



























Athugasemdir