Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

Alþingishúsið
Alþing­is­húsið Fyr­ir­hug­aðri dag­skrá Alþingis var aflýst vegna sjó­slyss­ins þegar Jökull ÞH sökk. Mynd: Víkingur

Fyrir­hugaðri dagskrá Alþingis var aflýst í dag vegna sjóslyssins í gær þegar fiskiskipið Jökull ÞH sökk um 60 sjómílur austur af Glettingi. Þrír af sautján skip­verjum fórust en fjórtán var bjargað.

Eydís Ásbjörns­dóttir, sem er 4. vara­forseti Alþingis, stýrði þing­fundinum sem hófst klukkan 13.30. Við upphaf fundarins minntist hún sjómannanna sem létust og vottaði aðstand­endum þeirra samúð.

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær og samhryggjumst aðstand­endum þeirra einlæglega. Við gleðjumst jafnframt innilega yfir björgun þeirra 14 sem komust lífs af úr þeirri þungu raun,“ sagði Eydís.

Hún þakkaði fyrir hönd Alþingis öllum sem komu að björguninni á landi, sjó og í lofti. Eydís sagði yfirvegun, fagmennsku og ósérhlífni hafa einkennt störf björgunar­fólks í gær og í nótt. Hún nefndi sérstak­lega sjómenn á skipum úti fyrir Austur­landi sem lögðu björgunar­fólki lið.

Að loknu ávarpinu risu þingmenn úr sætum í virðingar­skyni við sjómennina.

Á dagskrá fundarins höfðu verið óundirbúinn fyrirspurna­tími og önnur umræða um frumvarp utan­ríkis­ráðherra um bókun 35 við EES-samninginn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

„Það er erfitt að finna viðeigandi orð á stundu sem þessari. Þau virðast máttvana.“

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“