Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Market Matvöru ehf. til að greiða tveimur fyrrverandi starfsmönnum samtals 6.393.647 krónur í vangoldin laun og orlof auk dráttarvaxta. Dómarnir féllu 17. nóvember. Önnur konan fær 3.821.451 krónu og hin 2.572.196 krónur. Þá ber félaginu að greiða hvorri þeirra 400.000 krónur í málskostnað.
Konurnar hófu störf hjá félaginu í september 2021 og desember 2022. Báðar létu af störfum í janúar 2025 og leituðu þá til stéttarfélags síns, VR, sem fór yfir launaseðla þeirra. VR sendi vinnuveitandanum greiðslukröfur í júní sama ár og ítrekaði þær í júlí. Konurnar höfðuðu hvor sitt málið í nóvember eftir að innheimta bar ekki árangur.
Market Matvara krafðist sýknu og taldi heildarkjör kvennanna hafa samræmst kjarasamningi. Dómurinn benti á að félaginu hefði borið að gera skriflegan ráðningarsamning við hvora þeirra. Það hefði félagið ekki gert og bæri því hallann af óvissu um ráðningarkjörin.
Báðar lögðu fram tímaskýrslur sem sýndu vinnu þeirra dag fyrir dag. Félagið mótmælti skráningunum en lagði hvorki fram boðaðar vaktaskrár né gögn um frítöku eða mönnun verslunarinnar. Dómurinn hafnaði þeirri málsástæðu félagsins að konurnar hefðu glatað rétti sínum með því að bíða með kröfurnar. Dómurinn féllst á kröfur kvennanna að fullu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir