Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Aðalbyggingin
Aðal­bygg­ingin Nefndin taldi skól­ann hafa kynnt greiðslu­frest vegna inn­töku­prófs í tann­lækn­is­fræði með skýrum hætti. Mynd: Víkingur

Kona sem hafði tvívegis staðist inntöku­próf í tann­læknisfræði við Háskóla Íslands fékk ekki að þreyta prófið í þriðja sinn eftir að henni láðist að greiða próftöku­gjaldið innan frests. Áfrýjunar­nefnd í kærumálum háskóla­nema hafnaði kröfu hennar um að synjun skólans yrði felld úr gildi en úrskurðurinn var birtur í dag.

Konan skráði sig í prófið innan tilskilins frests og færði greiðslu­daginn í rafrænt áminningar­kerfi sitt. Hún gleymdi hins vegar að skrá að greiða þyrfti gjaldið, 35 þúsund krónur, fyrir klukkan fjögur síðdegis 1. júní. Að eigin sögn áttaði hún sig á mistökunum um tveimur klukku­stundum eftir að greiðslu­gáttin lokaði og hafði þá þegar samband við skólann.

Í kæru sinni benti konan á að skráningar­fresturinn hefði runnið út á miðnætti og taldi ólík tímamörk geta valdið misskilningi. Synjunin tefði nám hennar um að minnsta kosti ár. Hún kvaðst áður hafa verið nálægt því að tryggja sér eitt þeirra átta sæta sem stóðu til boða að lokinni fyrstu önn.

Nefndin taldi skólann hafa kynnt greiðslu­frestinn með skýrum hætti. Hann kom fram á vef tann­lækna­deildar og í tveimur tölvu­póstum til umsækjenda. Skólinn sendi síðari póstinn hinn 29. maí. Annar umsækjandi sem greiddi of seint fékk einnig synjun og engum var veitt undanþága. Þótt ákvörðunin væri íþyngjandi fyrir konuna taldi nefndin að skólinn hefði gætt bæði jafnræðis og meðalhófs.

Nefndin hafnaði jafnframt kröfum konunnar um sérstakt inntöku­próf eða að niður­staða prófs hennar frá árinu 2025 yrði tekin gild. Réttur til náms á grund­velli inntöku­prófsins væri bundinn við næsta haust­misseri á eftir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.
Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Innlent

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

Þrír skipverjar fórust þegar Jökull ÞH 299 sökk um 60 sjómílur austur af landinu. Fjórtán var bjargað með þyrlu.

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Hótað með eggvopni í ráni á höfuð­borgar­svæðinu

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu