Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, birti í morgun bæn á Facebook vegna sjóslyssins fyrir austan í gær þar sem þrír skipverjar á fiskiskipinu Jökli ÞH létust. Í bæninni biður hún fyrir þeim sem fórust, skipverjunum sem komust lífs af og ástvinum þeirra sem biðu fregna í gærkvöldi.
„Við biðjum fyrir ástvinum þeirra sem beðið hafa milli vonar og ótta vítt og breitt um landið. Styrk þau sem nú hafa orðið fyrir óbærilegri sorg og umvef þau kærleika þínum,“ segir í bæninni.
Biskup þakkar þeim sem tóku þátt í björgunaraðgerðunum fyrir kjark þeirra og seiglu við erfiðar aðstæður. Hún biður einnig fyrir heilbrigðisstarfsfólki og öðrum sem munu annast eftirlifandi skipverja og styðja ástvini þeirra á næstu dögum, vikum og mánuðum.
„Guð, umvef þau sem nú syrgja og sakna. Gef þeim styrk og huggun og lát þau finna að þjóðin öll stendur með þeim í sorginni.“
Í lok bænarinnar lýsir biskup þakklæti fyrir samheldni þjóðarinnar þegar á bjátar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir