Logi Karlsson hefur verið ráðinn forstjóri Símans ehf. og tekur við starfinu 1. desember næstkomandi. María Björk Einarsdóttir, forstjóri Ása, hefur jafnframt stýrt Símanum frá því að fjarskiptareksturinn var færður í sérstakt dótturfélag í júlí.
Samkvæmt tilkynningu um ráðninguna hefur Logi verið framkvæmdastjóri tækniþróunar hjá Símanum frá árinu 2023 og samhliða því gegnt starfi framkvæmdastjóra upplýsingatækni hjá Ásum. Logi hóf störf hjá Íslandsbanka árið 2016 og var síðast forstöðumaður nýsköpunar og stafrænnar þróunar hjá bankanum.
Logi er með doktorspróf í markaðsfræði og MBA-gráðu frá Sydney Business School. Hann er einnig með BA-gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



























Athugasemdir