Einbýlishúsið við Bleikjukvísl 24 í Árbæ í Reykjavík er komið á sölu og er ásett verð 221,5 milljónir króna. Kjartan Sveinsson teiknaði húsið sem var reist árið 1984. Eignin er 413 fermetrar og er verð á fermetra 536.450 krónur, sem þykir í minna lagi.
Í húsinu eru fimm svefnherbergi og tvö baðherbergi. Þar eru einnig stofa, borðstofa, sérstök arinstofa og sólskáli. Búr fylgir eldhúsinu og auk þess eru í húsinu þvottahús og geymsla. Bílskúrinn er tvöfaldur.
Á lóðinni er gróinn garður með tveimur skjólgóðum viðarveröndum og heitum potti. Stutt er í helstu þjónustu í hverfinu og útivistarsvæðið í Elliðaárdal er skammt undan.
Í sölulýsingu kemur fram að húsið sé vel við haldið og að mögulegt sé að skipta því í fleiri einingar.





Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir