Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Við skulum ekki gera lítið úr baráttu íslenskra kvenna“

Á alþjóða­degi Sameinuðu þjóðanna gegn ofbeldi á konum ræddi Diljá Mist Einars­dóttir stöðu kvenna

Barátta kvenna
Barátta kvenna Diljá Mist Ein­ars­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hvatti til sam­stöðu með konum sem sæta ofsóknum og sagði enn verk að vinna hér heima. Mynd: Víkingur

Diljá Mist Einars­dóttir, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, sagði Saqar Yari, sem flúði til Íslands frá ofbeldi og ofsóknir í Íran nítján ára gömul, vera sér fyrirmynd. Diljá ræddi heimsókn Saqar á Alþingi og stöðu kvenna í Íran í umræðum um störf þingsins á miðvikudag, á alþjóða­degi Sameinuðu þjóðanna gegn ofbeldi á konum.

Diljá rifjaði upp að í mennta­skóla hefði hún sett upp Píkusögur og vakið athygli á kynferðis­ofbeldi. Henni hefði þá oft fundist hún hugrökk þegar hún mætti mótlæti. „Í gær fékk ég hins vegar mikla fyrirmynd í heimsókn til mín í þingið.“

Saqar flaug frá Teheran til Egils­staða og hefur búið á Íslandi í fjögur ár. Diljá vísaði til nýlegrar umfjöllunar Vísis um Saqar og sagði hana tala reip­rennandi íslensku. Í samtali þeirra á þingi hefði Saqar lýst því hvernig konur tækju af sér slæðurnar í flugvélum á leið frá Teheran en settu þær aftur upp á heim­leiðinni.

Diljá sagði að írönsk söngkona hefði á mánudag verið hýdd 74 sinnum fyrir að koma fram án slæðu. Hljóm­sveitar­meðlimir hefðu einnig verið hýddir en flestir fjöl­miðlar hafa fjallað um málið. „Staða mann­réttinda í Íran er auðvitað ömurleg þótt klerka­stjórninni hafi ekki enn tekist að brjóta niður baráttu­vilja þjóðarinnar.“

Diljá gagnrýndi að Íran hefði ítrekað verið kjörið til setu í mann­réttinda­nefndum á vegum Sameinuðu þjóðanna. Hún hvatti til samstöðu með konum sem sæta ofsóknum víða um heim og minnti jafnframt á baráttuna hér heima.

„Við skulum ekki gera lítið úr baráttu íslenskra kvenna, hér er áfram verk að vinna og vonandi halda íslenskar stelpur áfram að vera háværar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Guðrún Karls Helgudóttir birti bæn vegna sjóslyssins fyrir austan og þakkaði þeim sem komu að björgunaraðgerðum.
Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Pólitík

Grímur þekkir óttann um öryggi fjöl­skyldunnar

Þingmaðurinn hvatti á Alþingi til vandaðra rannsókna á brotum gegn lögreglumönnum vegna starfa þeirra.
  • „Ég vil ekki mæta í fleiri jarðar­farir ungra manna“

  • Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

  • Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

  • Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

  • Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar